mánudagur, 12. janúar 2015

Fjölmiðlafrelsi: Heima eins og barðir rakkar

Írafárið mikla yfir fjarveru ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs í París er táknrænt.  

Það segir sína sögu um bullandi óheiðarleika,kannski samviskubit innst inni, fólks sem vinnur að því hörðum höndum að útrýma fjölmiðlafrelsi hér á landi.  Þeim fækkar stöðugt virkjum rannsóknarblaðamennsku og opinnar og heiðarlegrar umræðu á eyjunni í norðri.  Yfirtaka DV segir sína sögu, það er eðlilegt að þeir mæti ekki til varnar mannréttindum og fjölmiðlum sem þora, þess vegna sitja þeir heima eins og barðir rakkar.: 



DV – Líkbrennsla – Ingi Freyr kveður

Ingi Freyr Vilhjálmsson blaðamaður hefur sagt upp starfi sínu á DV. Ingi Freyr er 21. starfsmaður blaðsins sem hverfur frá störfum í kjölfar yfirtöku á blaðinu í September síðastliðnum.Ingi Freyr má segja að hafi verið síðasta hálmstrá nýrra eigenda að halda í en án þessa öfluga rannsóknarblaðamanns má segja að blaðið sé endanlega búið að vera.
Þeir starfsmenn sem hafa ýmist sagt upp eða verið reknir eru:
Framkvæmdastjóri
Jón Trausti Reynisson
Ritstjórar
Reynir Traustason og Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Blaðamenn
María Lilja Þrastardóttir, Atli Thor Fanndal, Þórir Traustason,  Viktoría Hermannsdóttir, Aðalsteinn Kjartansson, Kristjana Gudbrandsdottir, Birgir Olgeirsson, Ingi Freyr Vilhjalmsson, Jóhann Páll Jóhannsson, Jón Bjarki Magnússon , Hjálmar Friðriksson , Símon Örn Reynisson, Ásgeir Jónsson og Rögnvaldur Már Helgason
Úr öðrum deildum
Heiða B. Heiðars, Jón Ingi Stefánsson, Brynja Dögg Heiðudóttir , Helgi Þorsteinsson og Þórir Traustason