Og bræður munu berjast. Allt verður Framsókn að sápu. Krúnuleikurinn í algleymi.
Vindar Wintris næða um. Hnífastungur í bakið, allt eins og vera ber. Í Framsókn.
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir þá stöðu sem upp er komin í flokknum bestu leiðina til að tryggja að Framsóknarflokkurinn lifi ekki fram að 100 ára afmælinu. Færi svo yrði það alfarið á ábyrgð Sigurðar Inga Jóhannssonar varaformanns flokksins og forsætisráðherra.
Að sögn Vigdísar kom lýsing Sigurðar á atburðarrásinni 5. apríl sl., þegar tilkynnt var að Sigmundur Davíð myndi segja af sér sem forsætisráðherra, sér í algjörlega opna skjöldu.
Forsætisráðherra var meðal viðmælenda í þættingum Sprengisandi á Bylgjunni í dag og sagði þar m.a. að þegar hann hefði mætt á þingflokksfund fyrrnefndan dag í apríl hefði þingflokkurinn verið búinn að ákveða að setja Sigmund af og leita til Sjálfstæðisflokksins um áframhaldandi stjórnarsamstarf.
Vigdís segir málið súrt.
„Fullt af brigslum, svikum og óheiðarleika. En ég meina, ef menn vilja ekki að flokkurinn verði hundrað ára, þá er þetta besta leiðin til þess. Það er bara þannig. Og þá ber núverandi varaformaður flokksins fulla ábyrgð á því.“
Já, lesendur góðir það þarf svo sem ekki að segja margt. Hnífakastararnir sjá um það. Auðvitað er eðlilegt að súrmeti sé haft í veilsumatinn í Seinustu kvöldmáltíð Framsóknarflokksins. Bon Appetit!

Segir Sigurð Inga hafa gengið bak orða sinna
Sigmundur Davíð sagði að hann og Sigurður Ingi hafi rætt um tvennt þegar hann tók við forsætisráðherraembættinu. „Það var tvennt sem við ræddum þegar ég bað hann að taka við forsætisráðherraembættinu á meðan mál væru að skýrast, annars vegar það að ég treysti honum til þess að standa við það sem hann hafði lofað mér bæði persónulega og lýst yfir opinberlega og nýta ekki þetta tækifæri til að fara gegn mér. Hann hét því. Hitt var að hann héldi mér upplýstum,“ sagði Sigmundur Davíð í kvöldfréttum.„Hef ekki setið að svikráðum við nokkurn mann“
Þingflokkurinn vildi setja Sigmund Davíð af
„Enginn einn maður stærri en flokkurinn“
Eygló vill verða varaformaður án Sigmundar
„Það varð trúnaðarbrestur innan þingflokksins“
Brigsl, svik og óheiðarleiki

Hnífastungur hinar meiri. Og svo brunar Vigdís inn á völlinn. Þá fáum við allan sannleikann. Við getum treyst því. Ó já. Krúnuleikurinn harðnar, sjálfseyðingarhvötin allsráðandi.