þriðjudagur, 2. maí 2017

Vanþakklæti þjóðarinnar

Líklega er vanþakklæti Íslendinga með endemum, eða hvað?  Þeir kunna ekki að meta frábæra ríkisstjórn í brakandi góðæri!  Nú kemur Bjarni og jarmar og krunkar um réttlætið sem eigi eftir að koma. Þegar fólkið í landinu sjái að sér.  Allt sé í blóma og brátt muni sumarið heilsa með samhentri og fjörugri þjóð!

Hvernig stendur á því að ríkisstjórnarflokkarnir 3 eru með 33,4 prósenta fylgi og ríkisstjórin sjálf með 31,4 prósentu stuðning, er ekki kominn tími til að þeir fari í djúpa naflaskoðun og spyrji hvað er að?  Sendi kafara lengst niður í naflann sem komi upp með sannleikann. Hvort þetta sé eðlilegt? Er ekki kominn tími til að horfa í spegil, horfast í augu við sjálf sig. Horfast í augu við þjóðina?

Er í lagi með ákvarðanatöku í Heilbrigðismálum, Velferðarmálum, Umhverfismálum, Fiskveiðimálum, Atvinnumálum. Framtíðarstefnu í stóru málunum um Gróðurhúsaáhrif og Jöklabráðnun og hækkun Úthafanna. Stöðu okkar í heiminum?


 Er í lagi að aðaláhersla sé að setja áætlanir um gjafir til vina og vandamanna Íhaldsins á auðæfum landsins. Meðan Viðreisn og Björt Framtíð sem eru að hverfa af yfirborði jarðar, fá að dingla í snörunni, meðan engir fjármunir eru ætlaðir til málanna  sem fólkið í landinu setur efst á blað. Heilbrigði, Húsnæði, Félagskerfi, Vegaframkvæmdir,Menntakerfi. Það er eins og Óttarr og Benedikt hafi útrýmingarhvöt, vilji þurrkast út á mettíma. Fái nokkrar línur í sögunni neðanmáls. Kannski eru þeir bara á leiðinni inn í xD?

 Er ekki kominn tími til að endurskoða vegferðina, segja:  Aha, gerðum við þetta, eða efna til nýrra kosninga svo við fáum starfhæfa stjórn.  Þetta er svo grátlega heimskulegt. Landið og þjóðin hafa upp á svo margt að bjóða.

                                 

Sam­kvæmt könn­un MMR sem fram fór dag­ana 11-26. apríl 2017 mæl­ist Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn með mest fylgi ís­lenskra flokka. Litl­ar breyt­ing­ar urðu milli mæl­inga á fylgi stærstu flokk­anna, Sjálf­stæðis­flokks og Vinstri grænna. Fylgi Sjálf­stæðis­flokks mæld­ist nú 25,2% en það er 0,2 pró­sentu­stiga lækk­un frá síðustu könn­un sem lauk 13. mars 2017. Vinstri græn­ir mæld­ust með næst mest fylgi eða 23,4% og er það ei­lítið lægra fylgi en í síðustu könn­un þegar fylgið mæld­ist 23,5%. Fylgi Pírata mæld­ist nú 12,8% og er það lækk­un um tæp­lega eitt pró­sentu­stig frá síðustu mæl­ingu.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks mæld­ist nú 11,1% og mæld­ist 11,4% í síðustu könn­un.
Fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar mæld­ist nú 10,6% og mæld­ist 8,8% í síðustu könn­un.
Fylgi Viðreisn­ar mæld­ist nú 5,0% og mæld­ist 5,5% í síðustu könn­un.
Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 3,2% og mæld­ist 3,7% í síðustu könn­un.
Fylgi Bjartr­ar framtíðar mæld­ist nú 3,2% og mæld­ist 5,0% í síðustu könn­un.
Fylgi annarra flokka mæld­ist 5,4% sam­an­lagt.


Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina lækkaði milli mæl­inga. Alls kváðust 31,4% styðja rík­is­stjórn­ina nú sam­an­borið við 34,5% í síðustu könn­un
mbl.is