föstudagur, 30. desember 2016

Vigfús Geirdal 1948-2016 Minningarorð


Það er aldrei að vita hvenær hann bera að dyrum.  Aldrei.  Við sem erum komin á þennan aldur, farin að nálgast sjötugt. Komin á viðgerðaraldurinn eins og það heitir.  Það er allt annað að þurfa að fara í hnéaðgerðir eða mjaðma.  En þessi síglottandi Durgur  sem læðist illvígur að okkur, hlítir engum samskiptalögmálum.  Það nægir ekki að sjá hver er á ferð og skella aftur hurðinni. Hann á að ráðast á einhverja aðra, ekki á mína vini og kunningja.  Meðalaldurinn er eftir allt saman yfir 80 ár.  En Hann  hefur verið grimmur  í garð  ættingja, vina og kunningjahóp upp á síðkastið.  Þannig er lífið við stjórnum því ekki.  Við verðum að taka því sem að höndum ber.   Þegar Hann á í hlut. 


Þannig var með Vigfús Geirdal, vin minn í áratugi.  Hann fór á eftirlaun 65 ára frá lýjandi kennslu og ætlaði að stunda fræðistörf og ættfræði og njóta lífins eins og við höldum að við getum.  En það liðu varla nema rúm  tvö ár, þá sagði hann okkur frá því að hann væri kominn með sortuæxli í auga.  Það voru ekki góð tíðindi.  En .... læknavísindi láta ekki að sér hæða.  Hann var sendur til London og þar var gerð aðgerð og allt leit vel út, meinið var fjarlægt.  En ...... ári  síðar kemur í ljós að ekki er allt sem sýnist.  Við eftirlit kom í ljós að sortuæxli höfðu breytt úr sér og voru komin í lifrina.  Þrátt fyrir allar aðferðir læknisfræðinnar þá var það Hann sem sigraði. Allar mótaðgerðir voru reyndar en Hann fór með sigur  af hólmi.   Þið vitið hver. 



Photo: Those were the good old days, my friends. That's me and my old Saab travelling with Louis MacKay (the designer of the Peace Puffin) around Snaefellsnes in 1984 Auðvitað er það ósanngjarnt  þegar maður á besta aldri þarf að lúta lægra haldi.  Sem var líka kappsamur, knattspyrnumaður  á yngri árum, karl sem hafði upplifað margt, sumt sem aðrir hefðu bugast yfir, en alltaf kom hann niður á fæturna aftur. Og seinustu árin hans voru líklega þau bestu. Ég sem hafði verið vinur hans frá því í Háskóla. Það er skrítið hvernig  vinátta þróast.  Við vorum úr sama hverfi, eitt ár á milli okkar.  Hann flutti að vísu í hverfið tiltölulega seint  12 ára ef ég man rétt. Við  vissum hvor af öðrum en það var ekki fyrr en á háskólaárunum sem við urðum kunningjar, aðallega í sambandi við háskólapólitík. Við tókum þátt í starfi vinstri manna í Háskóla Íslands. Verðandi félag félag róttækira stúdenta í samstarfi við annað félagshyggju fólk  náði meirihluta í  Stúdentaráði  og í hönd fóru blómatímar og ötult starf.  Þar kynntumst við Vigfús sem leiddi síðan til vináttu í meira en  40 ár.  Sem þó var skemmtilega skrítin.  Við umgengumst  ekki jafnt og stöðugt.  Það komu tímabil sem mikill samgangur var á milli fjölskyldna okkar. En alltaf nokkur ár sem við heyrðum ekkert hvor af öðrum.  Ég fór til Svíþjóðar í 3 ár með konu minni Bergþóru og tveim börnum. Vigfús fór til Kanada með þáverandi konu sinni Kenevu Kunz.  En við tókum upp þráðinn þegar við komum til landsins. Þá voru komnar  tvær stúlkur í viðbót, ein í hverja fjölskylduna.  Og mikil samskipti voru þá milli Skerjafjarðar þar sem við bjuggum og Hafnafjarðar þar sem þau bjuggu.  Það voru fjöruferðir, gönguferðir, sumarhús,  kræklingatínsla og matarboð. Eins og gerist hjá ungu fólki. Sem átti heiminn. 

En allt er breytingum háð, Vigfús og Keneva skildu, við tókum samt þann pól í hæðina að umgangast þau bæði sitt í hvoru lagi.  Það var ekki eins en gekk samt. Og gengur enn eða gekk.   Vigfús keypti sér íbúð í Skerjafirðinum  í göngufæri frá okkur.  Það var setið og spjallað og fílósóferað  í kotunum okkar. Borðaðar steikur, bakað brauð.  Á þessum tíma voru herstöðvamál og afvopnunarmál ofarlega í okkar huga. Uppbygging hernaðarbandalaga á eldflaugum og stýriflaugum í Evrópu, hugmyndir um notkun kjarnorkuvopna í takmörkuðum styrjöldum.heimsendir. Það voru Friðargöngur og Mótmæli.  Spurningin um stöðu Íslands í heiminum var það sem margir veltu fyrir sér, friðarsamtök umhverfis Norður-Atlantshaf  tóku sig saman og stofnuðu samtök; Friðarsamband  Norðurhafa ,  á ensku  North Atlantic Network. Haldin var ráðstefna í Reykjavík í ágúst 1984, og við Vigfús fórum á friðarráðstefnur í Glasgow og Bergen árin á undan og eftir. Og Vigfús fór með Jan Grepstad frá Noregi og Jane Williams frá Bretlandi  í sendiför til Bandaríkjanna til að kynna þetta starf.  Það var gaman og gefandi að vinna með Vigfúsi að þessum málum og það þroskaði mann á margan hátt að kynnast fólki frá þessum löndum sem hugsaði um friðarmálin og vann að þeim.  Þessi ár voru hápunktur friðarsamstarfs hinna ýmsu félagasamtaka,og stéttarfélaga,  lækna, listamanna, herstöðvaandstæðinga, og ýmissa annarra svo lengi mætti telja.   Vigfús var líka í hópi sem skipulagði andóf gegn vopnakapphlaupi í sambandi við fund Ronalds Reagan og Gorbatschev haustið 1986.  Þá kom Joan Baez í heimsókn til okkar og hélt eftirminnilega tónleika og Vigfús fór með hana í heimsókn til Halldórs Laxness á Gljúfrastein sem kom meira að segja í fréttir RÚV. Það var ekki auðvelt á þeim árum að koma fréttum um friðarstarf í fjölmiðla, flest blöðin vour lokuð flokksblöð. Þar sem engin villutrú var leyfð eða birt.
.

Árin liðu við Bergþóra fluttum upp í Borgarnes og Vigfús kom víða við á vinnumarkaði á þeim árum.  Meðal annars sem upplýsingafulltrúi Vinnueftirlitsins, sem starfsmaður á auglýsingaskrifstofu, loks fluttist hann vestur á firði, var Skólastjóri Grunnskólans á Flateyri, blaðamaður og fréttamaður á Ísafirði, ferðamálafulltrúi  og loks starfsmaður Fræðsluskrifstofu Vestfjarða. Svo þýddi hann með miklum ágætum  margar sögur Hennings Mankells um Wallander lögreglufulltrúa sem nutu mikilla vinsælda, þar naut sín góð tungumálakunnátta hans og vandvirkni, sem áttu þátt í að gera þessar sögur svo trúverðugar á íslensku. 

Það voru margar og skrautlegar ferðir hans milli landshluta á þeim árum oft kom hann við á Helgugötu í Borgarnesi og við í Bauganesi.  Við fórum tveir með dætur okkar  austur í Breiðdal, en þær voru þar í sumarvist, Auður Lilja dóttir mín hjá ættingjum sínum í Breiðdal og Svanhildur dóttir Vigfúsar og Kenevu hjá frænda Bergþóru. Ferðin varð hringferð þar sem við áttum erindi á Akureyri. Einu sinni kom hann með kött sinn í geymslu hjá okkur. Hann þoldi ekki álagið á þessum flutningum og fór yfirum eins og sagt er þ.e.kötturinn!.  Varð stórskrýtinn og gekk loks fyrir ætternisstapa.  Annað sinn gengum við á Baulu í eftirminnilegri ferð, það gleymdist að taka tillit til þess  að Vigfús sem kom beint að vestan var í engri fjallgönguþjálfun, við æfðum skokk eins og atvinnumenn,en allt fór þetta vel að lokum og lambalærið sem kraumaði á lághita í ofninum í sex klukkutíma smakkaðist vel.   Við heimsóttum hann svo vestur á Flateyri, fórum í ferð með honum á Hornstrandir  þar sem eftirminnilegur atburður átti sér stað upp á Hælavíkurbjargi þar sem Vigfúsi sinnaðist við okkur og rauk frá okkur í fússi niður í skálann í Hlöðuvík, en allir jöfnuðu sig fljótt..  Svo er minnisstæð ferð sem við fórum með Vigfúsi og föður hans, Ingólfs, sem var nokkurs konar kveðjuför Ingólfs Geirdal um Vestfirði en hann dó skömmu síðar, en hann var fæddur og uppalinn Vestfirðingur..   Það var gaman að ferðast með Vigfúsi hann var fjölfróður og forvitinn um landið okkar og átti auðvelt með að kynnast fólki og þekkti marga.  

Við komum oft á þessum árum heim til foreldra Vigfúsar á Hæðagarði 56,  Svanhildar og Ingólfs, ég hafði kynnst Svanhildi en hún skúraði í Verzlunarskólanum  en ég stundaði nám þar.  Kona sem sat í stiga ávarpaði mig með nafni, það kom í ljós að þetta var móðir Vigfúsar.  Hún var spjallglöð og skemmtileg.  Og þekkti mig líklega af því að systir mín var vinkona systur Vigfúsar. Það var gaman að koma heim til þeirra hjóna og sitja yfir kaffibolla og ræða pólitík og bækur.  Sérstaklega þótti mér Svanhildur skemmtileg og íhugul, Ingólfur var fjarrænni þótt honum þætti gaman að ræða pólitík, en hann sá vel um fjölskyldu sína og það var eflaust gott að leita til hans.   Vigús sótti ýmislegt til þeirra beggja, hann gat verið  einráður og sá ekki alltaf skóginn fyrir trjánum.  Hann var um leið hlýr vinum sínum og kunningjum og fljótur að jafna sig og gleyma ef eitthvað slettist upp á vinskapinn sem gat gerst. 

Vigfús var svo heppinn að hitta konu sem sem varð seinni kona hans með tímanum , Sigrúnu Ágústsdóttur, námsráðgjafa og kennara, fyrrum formanns Kennarafélags Reykjavíkur. Þau voru gefin saman með pompi og pragt af fyrrum sýslumanni Ísfirðinga.   Þeim vegnaði vel saman, þeirra var samhent  fjölskylda, sem komu sér vel fyrir á Fjölnisveginum og sumarbústað í Eilífsdal norðan Esjunnar.  Þar sýndi  Vigfús ýmsar nýjar hliðar á sér í sambandi við smíðar og lagfæringar og  endurbætur á bústaðnum, ég vissi að hann var góður málari hafði unnið við það sem ungur maður mörg sumur en á öðrum sviðum kom hann mér á óvart.  Það var ekki amalegt að  koma í húsakynni þeirra upp frá og snæða lambakjöt og drekka dýrar veigar, ganga upp hlíðar Esju eða umhverfis Meðalfellsvatn.

 Vigfús hafði lengi haft mikinn áhuga á ævi og lífshlaupi afa síns og nafna Vigfúsar Sigurðssonar .  Hann vann seinustu árin að safna gögnum og heimildum um afa sinn, sem hafði farið með hinum heimsþekkta vísindamanni Alfred Wegener til Grænlands í vísindaleiðangur sem leiddi til uppgötvunar  Wegeners á reki fleka jarðarinnar, svonefndri  Jarðrekskenningu.  Hann vann að útgáfu og þýðingu á dagbókum afa síns úr fyrstu ferð þeirra sem var ótrúlega ævintýraleg en íslenskir hestar voru teknir með í ferð þessa en þeir fóru þvert yfir Grænlandsjökul.   Vigfús vann að þessu meðan hann hafði þrek til og ég hygg að  dagbækurnar og greinargerð Vigfúsar verði gefnar út á næsta ári. Það var erfitt að horfa á þennan vin okkar veslast upp seinustu mánuði en enginn má sköpum renna. Um leið sýndi það manni hversu sterkur einstaklingur Vigfús var, hann tók þessum veikindum sínum með ótrúlegu æðruleysi. Hann er okkur til eftirbreytni þegar við mætum skaparanum.


Það verður að segjast að seinustu áratugir Vigfúsar  voru hans bestu ár.  Í betra jafnvægi en oft áður,  meiri fjölskyldumaður, faðir og afi.  Hann kenndi  í Borgarholtsskóla þar til hann lét af störfum.  Hans verður saknað af Sigrúnu, fjölskyldunni og vinum.  Þarna fór góður drengur.  Við Bergþóra sendum samúðarkveðjur til Sigrúnar, Svanhildar Nönnu,  Helgu, Geirmundar Orra og fjölskyldna þeirra. 





































miðvikudagur, 28. desember 2016

Holan, 120 milljónir

Ætli Óttar Proppé verði ekki duglegur að ýta þessu máli áfram sem nýr menntamálaráðherra?Ríkisstjórnin sáluga ætlaði að keyra þetta af stað en .... 

Hvað gerðu þingmenn ?  Einhverjar fréttir? VG, S, B?  Þögn er gulls ígildi. 

Fær 120 milljónir vegna „holu“ íslenskra fræða

laugardagur, 24. desember 2016

Stjórnmál; loforð eru loforð

Nú eiga allir að vera í góðu skapi.  Minnsta kosti í stjórnmálum.  Fjárlög afgreidd, aukafjárlög afgreidd, Lífeyrisfrumvarp afgreitt, og sólin skín, myndrænt séð. Kosningloforð þurrkuð út, svikin.  Ekkert mál. Lífeyrismál opinberra embættismanna endurunnin, án útreikninga.  Allir eiga að vera glaðir. 

Og ný Ríkisstjórn mynduð, svona bak við þykk svört gluggatjöld, konjaksglös og vindlareykur.   Flaggað í Engey.  Ham spilar á árshátíð xD.  Svik, harmur og dauði. Segja sumir.  En kemur það á óvart?  Valdaglýjan glitrar í augum. Litla flokka dreymir um að vera stóra. Stóra flokka dreymir
að spila með litla flokka. 

Þetta er nú neikvætt. segja sumir.  Já, segir hann Erling. Engir flokkar eiga að umhverfast við stjórnarmyndun.  Loforð eru loforð.  Ef þau eru ekki efnd verður að koma skýring. Hún verður að vera gild.  Allir flokkar lofuðu skjótri uppbyggingu heilbrigðiskerfis.  Ríkið fær 27 milljarða arð  úr Íslandsbanka. Af hverju er þetta ekki sett í heilbrigðissjóð og aftur næsta ár.  Borga lánin á þar næsta ári  Efna loforð.  Enginn lofaði að borga upp allar skuldir sv0na einn tveir og þrír, auðvitað er gott að borga skuldir.  En betra er að fólk deyi ekki fyrir augum á okkur. Eitt stórt loforð á kjörtímabili, næst að útrýma fátækt á Íslandi.

Þetta er jólakveðjan mín. 




miðvikudagur, 14. desember 2016

Svarta myrkur: Á hvaða leið?

Það er rigning úti.  Ég er dapur.  Það er svo margt svart í veröldinni. Svo lítið sem maður getur gert. 
Margt fer öðruvísi en maður ætlar. Stjórnmálaforingjar ræðast í Sjónvarpi, þeir sem nenna að mæta. Þar er enginn friður í þeim hópi. 

Auðvitað vissum við að Viðreisn ætlaði aldrei í samband við vinstri flokka.  Það er svo hyldjúp gjá þar á milli.  Flest af fólkinu þar er bundið viðskiptum og bónusum og þjónkun við sína herra. Þá sem telja sig eiga okkur.  Eins og Sjálfstæðisflokkurinn.  
Svo var samþykkt á Alþingi um Opinber fjármál mjög vafasöm,um svona hugmyndir var mikil umræða í Bretlandi fyrir skömmu sem gerðu kerfisbreytingar á ýmsu nánast vonlausar. Eins og vitnað var í í gærkvöldi.  Allt stopp vegna laga um Opinber fjármál. Nei það má ekki reisa sjúkrahús.  Það er bannað!
Að finna sökudólg er svo billegt eins og umræðan á netinu seinustu daga sýnir.  

Út í heimi höfum við horft upp eina stærstu borg MiðAusturlands lagða í rúst meðan íbúar læddust þarna um til að reyna að halda lífinu.  Meira að segja börn eru leiksoppar hildarleiksins. Skömm sé þeim sem bera ábyrgð á þessu. 

Hérna er fámennur hópur ofstækisfólks sem sér ofsjónum yfir þeim fámennu sálum sem koma


hingað, sem flóttamenn eða flækingar.  Það er ekki þannig að Ísland sé efst á lista hjá flestum.  En einn og einn hefur heyrt um landið sem hefur engan her og ekkert stríð.  Þar hlýtur gott að vera. Mega þeir ekki vera hérna?   Vinna, stunda nám, ala upp börn, lifa lífinu?
Já lesandi góður.  Ég er dapur. Við erum sjálfum okkur verst.  Kítum innbyrðis meira en þörf er á.  Meðan lífið gengur sinn gang, börn fæðast og gleðja ættingja og vini.  Sjúklingar heyja baráttu við ólæknandi sjúkdóma meðan þeir nánustu þjást að horfa upp á lífsbaráttuna sem er alltaf til staðar sem svo oft er árangurslaus. 

Já, ég er dapur.  Rigningin dansar á malbikinu, vetrarmyrkrið liggur eins og mara yfir okkur. En alltaf hugsum við, það er ekki öll von úti.  Við berjumst um hæl og hnakka. En ef til vill eru of mörg dæmi um að manneskjan á sér ekki viðreisnar von.  Við erum líklega tegund á fallandi fæti.   


  

mánudagur, 12. desember 2016

Stjórnleysi: Einkavæðingarhákarlarnir bíða

Það er engin furða þótt erfitt sé að mynda stjórn.  Hagsmunir fólksins í landinu eru svo ólíkir. Og búið er að hringla í ýmsum þannig að þeir trúa því að það séu ekki til peningar fyrir helstu velferðarnauðsynjum. Spítölum, læknisþjónustu, lágmarksþurftum fólks.

Við höfum aldrei haft það svo gott segir Bjarni, það er auðvitað rétt þegar hann talar fyrir sjálfan sig og sína.  Hann sem komst hjá Hruni af því hann fékk réttar upplýsingar.   Hann hefur það djöfulli gott.  Hann og hans fjölskylda. Hann hefur hjálpað að liðka fyrir því fólki að stofnanir á góðu verði hrjóti í fang þess.  

En hann veit ekki um annað fólk, hann þekkir ekki hlutskipti annars fólks.  Ég hjóla framhjá á miðvikudögum þar sem fólk bíður í röðum eftir matarpokum.  Bjarni myndi ekki þora að láta sjá sig þar.  Þetta er ekki hans veruleiki, þess vegna er hann ekki til.   Ég skaut því fram á Facebook hve oft hann hafi heimsótt Landspítalann en hann úthúðaði forstjóranum í seinustu viku fyrir að segja sannleikann. Líklega hlustar hann ekki á fréttir þegar sagt er frá legu fólks á neyðardeildum sem bíður eftir að komast til sérfræðinga.  Hann hefur líklega ekki flett upp skýrslu Landlæknis um biðlista í aðgerðir.  Það tók mig 4 ár að komast með 2 hné mín í aðgerðir (já Bjarni ég hef 2 hné) .   

Enn hefur hann og Benedikt og Viðreisn þá trú að að það skapi mest að láta hátekjufólk borga sem lægsta skatta til að láta hjólin snúa.  Þótt Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi varað mjög gegn því. Að það sé hættulegt að láta almannaþjónustu drabbast niður og bjóða upp á þjónustu fyrir þá sem geta borgað. 

Svo það er engin furða þótt erfitt sé að mynda ríkisstjórn.   Einavæðingahákarlarnir bíða eftir að hægriflokkarnir geti troðið sér í ráðherrastólana.  Svo sjúkrastofnanir bjóðist á góðum prís. 

Svo ætli við höfum ekki framundan 4 ár mótmæla og vonbrigða.   

Ríkisstjórnarviðræðum fimm
flokka undir stjórn Pírata slitið

Birgitta Jónsdóttir staðfestir það í samtali við Stundina. Hún fer á fund forseta í dag.

http://stundin.is/frett/benedikt-fordadi-500-milljonum-ur-glitni-fyrir-thjodnytingu-og-sendi-til-florida

miðvikudagur, 7. desember 2016

Hæstiréttur: Hvaða gildi?

Mál málanna getum við treyst Hæstarétti.  Þetta er stór og mikil spurning.  Þess vegna þarf allt að vera í lagi.  Vinnubrögð, starfsreglur, siðferði.  Ég fór svolítið bratt í pistli mínum í fyrradag.  Það kemur fyrir. 

Auðvitað er það þannig að valdamiklir aðilar vilja ekki að allir dómar Hæstaréttar séu íslenskri yfirstétt til góða.  Þeim sem æddu áfram í Hrunkerfinu.  Þeir hafa aðstöðu til að læða gögnum til fjölmiðla. Sem einhver virðist hafa gert í sambandi við Markúsarmálið.  Svo það verður fjölmiðlamál með tilheyrandi Netumræðu þó töluvert vandaðri en oft.  

Fjölmiðlar hafa þarna mikla ábyrgð.  Eiga þeir að leið svona sendingar hjá sér?  Eða skoða þær og birta að vel yfirveguðu máli.  Sem tveir fjölmiðlar virðast hafa haft í hyggju. Og ef til vill vitað hvor af öðrum.  Svo ýmislegt bendir til að umfjöllun RÚV hafi ekki verið nóg ígrunduð.  Sigurður Tómas Magnússon prófessor kemur inn á flest sem varðar þetta mál. Margt sem flestir geta verið sammála um, annað ekki.  

Markús fjárfestir í gríðarhlutabréfum Glitnis og selur, eftir dönsku skýrsluna? Eins og margir virðast hafa gert. Með ofsahagnaði.
Svo kaupir hann í sjóðum Glitnis.  Og leysir út rétt fyrir Hrun.  Og tapar milljónum.   
Semsagt hann græðir meiru en hann tapar.  Tapar samt. Eins og fjöldi Íslendinga.  Hvernig líður honum, fer hann til sálfræðings eða geðlæknis eins og Woody Allen, og úttalar sig. VIð vitum það ekki.  

En hann er ekki venjulegur Íslendingur.  Hann er Hæstaréttardómari.  Þar er munurinn.  Svo  spurningin er getur hann tekið þátt í dómum um málefni Glitnis nokkrum árum seinna.  Siðfræði mín segir að svo sé ekki, alveg sama þótt íslensk lögfræðivenja og dómar segi annað.   Við höfum dóm um annað mál, auðvitað segir prófessorinn að það sé allt annað. En nú blasir við að einhver sakborninganna getur leitað réttar síns.  Hæstiréttur stendur veikar en áður.  Mann grunar að það sé verið að drepa málum á dreif.   Þess vegna er svo nauðsynlegt að Hæstaréttardómarar íhugi vel gjörðir sínar.  Þeir eru með fríðindi umfram aðra.  Þau kosta hófsemi og hógværð.  Manngildi frekar en auðgildi.  

Hjördísarnefnd verður að taka upp betri vinnubrögð ef hún hefur ekki gert það.  Lög og reglur um fjármál dómara þarf að taka alvarlega.  Þetta er ekki í þykjustu. Ríkið þarf að búa þessari nefnd starfsaðstöðu.  Eftirlit hefur fengið illt orð á sig í þjóðfélagi okkar. 

Við þurfum að breyta því.  



  Rýrir svona mál traust á íslenskum dómstólum?
„Það fer eftir því hvernig umfjöllunin er. Ef þetta er sanngjörn og heiðarleg umfjöllun, þá á þetta að verða til þess að upplýsa fólk. Þetta hins vegar brýnir fyrir dómurum að þeir eru ekki hafnir yfir lög. Þeir verða að fylgja sömu lögum og aðrir. Í þessu tilviki verða þeir auðvitað að tilkynna eignir sínar. Það má ekkert slaka á slíkum kröfum. Jafnvel ætti að efla þetta eftirlit. Ég sé fyrir mér að það væri bara sent bréf til dómara árlega og þeir beðnir um að uppfæra upplýsingar um bæði atvinnuþátttöku sína og hugsanlega eign í atvinnurekstri.“

þriðjudagur, 6. desember 2016

Maddama Spilling og Frú Græðgi,í Hæstarétti

Alls staðar er hún Maddama Spilling.  Nú ryðst hún inn í Hæstarétt.  Og tekur með sér vinkonu sína Frú Græðgi ehf.   Þar eru margir að sögn rannsóknardeildar Kastjljóss.  Þar er nefndur forseti réttarins sem fremstur meðal jafningja.  Besti vinur Jóns Steinars (not!).  Tóngefandi í dómum gegn spillingargossum.  Svo margir munu fagna (mögulegu) falli hans.  Heimta að fá mál tekin upp. 

Hvað sem því líður, þá er hann vart hafinn yfir lög og reglur.  Reglur um meðferð eiginfjár eiga við hann eins og aðra í  Hæstarétti. Einhvern veginn er maður svo barnalegur um íslenska spillingu að maður heldur að hún sé ekki í Hæstarétti.  Fólk sem fær hæsta launþegakaup ríkisins út á það að það sé ekki hægt að nálgast það með fjárfúlgum.  Mikið væri land okkar ömurlegra ef við hefðum ekki Kastjljós til að henda fýlubombu inn í spillingarbúrin.  En spurningin er hvort þetta hrófli við Eigendafélagi Íslands.  Auðvitað er spilling í Hæstarétti!  Það getur ekki verið annað þegar Jón Steinar fær að læðast þar inn.  Og kvartar svo og kveinar af því að hinir  vilja ekki hafa hann með.  Það væri gaman að vita um lekann í þetta skipti.  Það eru margir sem vilja ýmislegt ljótt þar á ferð. Hvaðan kemur hann?

En við þessi saklausu börn þjóðarinnar viljum alla burt úr Hæstarétti Íslands sem dansa spilingardansinn þar, jafnvel þótt þeir séu þokkalegustu dómarar og fræðimenn.  Eða hvað.  Greinarhöfundur er huxi yfir þessum tíðindum.  Ekki get ég lesið sálarlíf dómaranna, ég væri sjálfur mjög fúll ef ég hefði tapað milljónum í Glitni og ætti svo að dæma þessa dela!  Svo töluverður efi hlýtur nú að vera til staðar um hæfi eða vanhæfi slíkra dómara.  Hvað sem Skúli Magnússon formaður Dómarafélagsins segir.   Það verður nóg að gera hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni!


 




Hæstaréttardómari átti hlutabréf fyrir tugi milljóna fyrir hrun 

Í kynn­ingu á umfjöll­un­inni segir að dóm­arar við Hæsta­rétt séu ævi­ráðnir og laun þeirra með því hæsta sem ger­ist hjá hinu opin­bera til að tryggja sjálf­stæði þeirra. „Eign­ist dóm­arar hluta­bréf, ber þeim að til­kynna Nefnd um dóm­ara­störf það - og séu þau meira en þriggja millj­óna króna virði, verður dóm­ar­inn að fá heim­ild fyrir þeirri eign frá nefnd­inn­i. Engin gögn finn­ast hjá nefnd­inni um að Markús hafi til­kynnt um sölu hluta­bréf­anna árið 2007. Þá seldi hann þau fyrir 44 millj­ónir króna. Í kjöl­farið fjár­festi hann í gegnum einka­banka­þjón­ustu Íslands­banka fyrir tæpar 60 millj­ónir króna. Engin til­kynn­ing finnst um það heldur hjá nefnd­inn­i.“ (kjarni síterar Kastjljós)

Segja Markús ekki hafa farið að regl­um

 

Ekkert bendi til vanhæfis Markúsar

 

 




sunnudagur, 4. desember 2016

Ný velferðarstjórn: Nú skelfist íhaldið.

Þeir skelfast núna íhaldsmennirnir. Því í ljós kemur að þeir sem héldu að væru óábyrgari en þeir sjálfir eru ábyrgir stjórnmálamenn.  Sem meta hag fólksins í landinu meira en sérhagsmuni. Þeir vilja huga að mikilvægustu málum þjóðarinnar, heibrigðismálum, og athuga um leið hvaðan peningarnri eiga að koma.  Úr fórum ríka fólksins.  Útgerðarmönnum og bröskurum.  Ekki úr vösum þeirra sem eiga minnst.  

Því skelfast hagsmunapotarar Yfirstéttarinnar á Íslandi.  Birgitta hefur skákað þeim við.  Það er hættulegt.   Nú verður fjölmiðlaflóran sett af stað.  Það er mikilvægt að vera á verði. Því einskis er svifið, standast Benediktog kó þrýstinginn og forðast að reisa við flokk Sjálfstæðisins með Panama liðið innanborðs?  Verður Óttarr of óttasleginn?    Við sjáum hvað setur. Greinarhöfundur er hugsi.  Hvaða bellibrögðum verðum beitt?  Mun Davíð segja frá hrósi Pútíns á Birgittu?  Mun Birgitta koma samskiptum Íslands og Rússlands í eðlilegt horf?  Hvað mun Sigmundur taka til bragðs. Er það furða þótt hann sé hugsi, ég meina greinarhöfundurinn. Vonandi fær engin aðsvif.  


Þingmenn Pírata hittast í dag


Fékk aðsvif undir stýri


Vladimír Pútín hrósar Donald Trump

Þeir Vladimír Pútín og Donald Trump ræddust við í síma fljótlega eftir að úrslit í forsetakosningunum í Bandaríkjunum lágu fyrir. Þeir voru að sögn sammála um að koma yrði samskiptum Rússlands og Bandaríkjanna í eðlilegt horf.