Tantra
Fyrir daga
Hamborgarabúllunnar
Smárabíós Hundraðogeins
Hrunsins
Arabavorsins LadyGaGa Jónínu
Ben Eirar
Önnur veröld aðrir hljómar aðrar
víddir
Tónabíó Lídó Sælkerinn
Naustloftið Bæjarbíó Hafnarfjarðarstrætó
Glaumbær Tjarnarbúð Askur
Klúbburinn Hótel Borg Hádegisbarinn
Alþýðubrauðgerðin (hugsaðu þér
Alþýðu)
Kjötbúðin Borg Ríkið á Lindargötu Ingasjoppa á
Bústaðavegi Sprúttið í leigubíl
á góðum dekkjum
Tónlist gleymskunnar eyrnakonfekt hughrif
Esjugarrinn tætist í gegnum
frakkann lakkskórnir engin vörn
hretinu, strætóarnir löngu
hættir að ganga
göngutúrarnir frostbítandi og máninn glottir
sem aldrei fyrr eldrauður af
vímu
og greddu
Stjörnubíó Skalli Geitháls
(ekki má gleyma honum)
Vesturver Bókabúð Braga
Faco Hlégarður Tröð KRON
Þórsmörk Húsafell
Trúbrot Óðmenn Rúnar
á kaðlinum Diddi spilar á
haustrommu blús feitur
safaríkur
Maggi Finnur
Rikki Óli
(munið þið Rikka?)
Guðmundur Ingólfs og Forseti
Alþingis á efri hæðinni verðandi Forseti
Íslands á næturklúbbi við
Grensásveg
Tónaskali hins liðna
svo litfagur glitfagur
jakki sem flýgur í sveiflu
nælonskyrta sem límist
við skrokk pils upp á
miðju læri sveifla í
mjöðmum miðstöð lífsins
miðstöð girndar endastöð
fullnægingar
Síld og fiskur Togaraafgreiðslan
Ólabúð Stúdentakjallarinn
(stundaðar lyftingar)
Tjarnargata 20 Eimskip
Búrfell Grammið (þvílík ósvífni)
Neil Young Van Dyke Parks (hvur er það)
Lennon og Dylan Barrett og
Hendrix,
hljómar sem tæta grip sem
trylla
Kinks í Austurbæjarbíó Lindon
Kwesi
Johnson í Sigtúni Megas í Tjarnarbíó
Patti í NASA NASA NASA NASA
Djazz Coltrane Miles
Mingus Monk Dolphy
Djuke Satchmo Ella Billie í himnaríki
stjörnurnar færast nær og nær
augun splundrast í milljón
geisla
Tónatíð tónalíf
tónastríð
tónaveröld tónadraumar
skapaðu þinn eigin tónalista
syngdu hann í leikskólanum
syngdu hann í baði syngdu hann
á Esjugöngu syngdu hann á
Austurvelli
syngdu hann í handjárnum syngdu
hann
á Bessastöðum syngdu hann í Þjóðarbókhlöðunni.
Þeir geta breytt
nútíðinni
Þeir geta rústað framtíðinni
Þeir breyta ekki fortíðinni
Okkar