Kjaradeilur, fjarverur, utanfarir, uppnám, afmælisveislur.
Einföld lýsing á sjálfsköpuðu ástandi ríkisstjórnarinnar.
Ríkisstjórn Hóglífisins og Sjálfhverfðarinnar. Þar sem öll gagnrýni er árás.
Annar forystusauðurinn þarf að jarma yfir fjárhúsi sínu. Þar sem allir taka undir í kór.
Formaður sem búinn er að tapa helmings fylgi á tveim árum og fær 98% kosningu !!!!!
Eins og í Albaníu.
Hinn skálar í almennilegu Kampavíni á sundlaugarbakka. Íturvaxinn og snareygur. Hugsar sitt næsta útspil í samkeppninni við Sjálfhverfan númer eitt. Það er erfitt að taka framúr honum. Orðalepparnir, salrýnin.
En ............ Kjaradeilurnar eru á sínum stað, þær fara ekkert. Fólk verður sífellt ruglaðra á hugmyndum valdamannanna, sjúkrastofnanir eru komnar á endastöð, við erum endalaust langt á eftir þjóðum sem við mælum okkur við, það er til fullt af peningumí samfélaginu, það má ekki skattleggja þá tekjuhæstu. Milljörðum er mokað út í arð til Þjóðareigendanna.
Þeir eiga ríkisstjórnina, þeir eiga okkur, Barónarnir. Sigmundur Davíð og Bjarni fá að leika með okkur í umboði kjósenda sinna. Þeir úthluta gæðum okkar svo framarlega sem það komi ekki niður á Barónunum og Barónessunum.