Nú eiga þeir sem minnast á hann að fyllast samviskubiti. Nú má líklega enginn minnast á hann án þess að vera gerandinn í einelti. Og Guðni þolandinn, Karlinn sem reitti af sér vafasama brandara um samstarfsfólk sitt, sem er ekki allur sem hann er séður.
Jamm, í lífi okkar þjóðar verður allt öfugt um þessar mundir, allt á hvolfi. Svo öfugmælavísur eiga vel við:
Séð hef ég hvalinn sitja á stól,selinn strokka og renna,skötuna ganga á grænum kjól,gráan hest með penna.
Og framsóknardjókur (á góðri íslensku) :
Svo er sagt að Jónas Jónsson frá Hriflu hafi eitt sinn komið að máli við sýslumann ágætan og mælst til þess að hann gengi í Framsóknarflokkinn. Sýslumaður tók því dauflega. "Ertu þá í Íhaldsflokknum?" spurði Jónas. "Nei," sagði sýslumaður, "ég er utan flokka og ætla mér að vera það." Jónas hugsaði sig um andartak, en sagði svo af þjóðkunnri orðheppni: "Þetta er nú eins og að hafa tvo góða stóla og setjast á gólfið."
Þessi vísa á vel við um þessar mundir:
Í eld er best að ausa snjó,
eykst hans log við þetta.
Gott er að hafa gler í skó
þá gengið er í kletta.