Enn er allt á huldu með samningana í Straumsvík.
En ýmislegt er á seyði, starfsmannastjóri RioTinto Alcan í Evrópu mættur á staðinn. Auðhringur sem er alræmdur fyrir stífni í samningum. SA blandar sér í málin. Álframleiðsluheimurinn er í kreppu. Það er eitthvað meira en smáatriði um verktaka sem er að ræða.
Straumsvík hefur verið að skila gróða i áratugi, rafmagnsverðið lengst af hlægilega lágt. Enn skilar hún sínu. Þótt Kinverjar séu að drepa markaðinn með lágu álverði. Ætlar RioTinto
Alcan að fórna verksmiðjunni fyrir principp, varla. Og þó ansi hefur gengið erfiðlega að semja.
Vonandi láta Gylfi Ingvarsson og félagar ekki kremja sig. Ætli það verði jólagjöf Rio Tinto í ár að loka einu stykki álveri?
Hver veit?
Eftirmál:
Verkfalli aflýst - kjaradeila enn óleyst
Það fór sem mig grunaði. Þrýstingurinn á starfsmenn var of mikill. Auðhringur með Thatcher Íslands í fararbroddi lætur ekki kúga sig. SA tók virkan þátt á bak við tjöldin verkalýðshreyfingin ekki. Eða hvað?
Við hvetjum samninganefnd ÍSAL
til að klára samninga við hluteigandi verkalýðsfélög eins fljótt og
auðið er, án þess þó að störf almennra starfsmanna verði sett í almenna
verktöku. Við viljum hvetja stjórnendur og samninganefnd ÍSAL að virða
og meta þann mannauð sem býr í þekkingu og reynslu þeirra starfsmanna
sem hafa lagt starfsævi sína undir til að tryggja sem bestu afkomu
fyrirtækisins í gegnum árin. Þessir sömu starfsmenn hafa verið tilbúnir
að leggja á sig ómælda vinnu þegar erfiðir tímar hafa verið hjá
fyrirtækinu," sagði Gylfi á fundinum. (hringbraut í byrjun október)
En ýmislegt er á seyði, starfsmannastjóri RioTinto Alcan í Evrópu mættur á staðinn. Auðhringur sem er alræmdur fyrir stífni í samningum. SA blandar sér í málin. Álframleiðsluheimurinn er í kreppu. Það er eitthvað meira en smáatriði um verktaka sem er að ræða.
Straumsvík hefur verið að skila gróða i áratugi, rafmagnsverðið lengst af hlægilega lágt. Enn skilar hún sínu. Þótt Kinverjar séu að drepa markaðinn með lágu álverði. Ætlar RioTinto
Alcan að fórna verksmiðjunni fyrir principp, varla. Og þó ansi hefur gengið erfiðlega að semja.
Vonandi láta Gylfi Ingvarsson og félagar ekki kremja sig. Ætli það verði jólagjöf Rio Tinto í ár að loka einu stykki álveri?
Hver veit?
Eftirmál:
Verkfalli aflýst - kjaradeila enn óleyst
Það fór sem mig grunaði. Þrýstingurinn á starfsmenn var of mikill. Auðhringur með Thatcher Íslands í fararbroddi lætur ekki kúga sig. SA tók virkan þátt á bak við tjöldin verkalýðshreyfingin ekki. Eða hvað?
Samninganefnd
starfsmanna álversins í Straumsvík ræður nú ráðum sínum í húsakynnum
ríkissáttasemjara. Þeir héldu fund í morgun í húsakynnum Hlífar í
Hafnarfirði, og síðan gengu helstu forsvarsmenn nefndarinnar á fund
fulltrúa Rio Tinto Alcan á Íslandi og Samtaka atvinnulífsins.