föstudagur, 23. janúar 2015

Lekasápa og Hrunsápa: heiðarleiki og réttsýni

Margur fréttamaður hefði gefið litla fingur fyrir að vera fluga á vegg þegar fyrrum innanríkisráðherra bað fyrrum lögreglustjóra afsökunar með umboðsmann Alþingis viðstaddan! Það hefði verið krassandi frétt og ósvikinn hápunktur á ferli rannsóknar blaðamanns sem allir vita að það orð er háð í munni valdamanna á Íslandi.  Enda lífa þeir líklega í heimi þar sem engin spilling er til. 

Við erum vön látum í stjórnmálum en ekki þessari allsherjar Sápu sem svokallað Lekamál endar í. Þó enn læðist að mörgum grunur að ekki hafi öll kurl komið til grafar í því ömurlega máli. Og verða líklega aldrei í andrúmslofti íslenskra stjórnmála.

Nú hefur umboðsmaður skilað skýrslunni, Alþingi tekið á móti, ábendingar um vinnubrögð sendar forsætisráðherra, en hvað gerist svo?  Ekki mikið.  Einn valdamikill stjórnmálamaður hefur misst æruna og á varla afturkvæmt í æðstu stöður.  Karl á uppleið í stjórnmálum fær fangelsisdóm.  Störf Umboðsmanns Alþingis færa mörgum sönnur á að embættiskerfið getur skilað heiðarlegu og góðu fólki, jafnvel þótt að við höfum mörg dæmi um hið gagnstæða.  

Í sömu viku lýkur hinum sviplitla og dapurlega ferli fyrrum viðskiptaráðherra Hrunsins sem kastaði öllu á glæ fyrir nokkrar færslur af  Kreditkorti og flýr inn á Vog til að geta horfst í augu við veruleikann vímulausan. Ráðherrann sem fékk aldrei að fást við embætti sitt vegna þess að fáir treystu honum, ekki einu sinni í eigin flokki. Þær eru margar harmsögur Hrunsins og eftirkasta þess. Það er ekki allra að vera í stjórnmálum, jafnvel þótt að vilji og metnaður sé fyrir hendi.  Það þarf sterk bein og eitt sem ekki hefur verið hampað mikið í íslenskum stjórnmálum:  Það er heiðarleiki og réttsýni. 



Engin ummæli:

Skrifa ummæli