Enn er allt á huldu með samningana í Straumsvík.
En ýmislegt er á seyði, starfsmannastjóri RioTinto Alcan í Evrópu
mættur á staðinn. Auðhringur sem er alræmdur fyrir stífni í samningum.
SA blandar sér í málin. Álframleiðsluheimurinn er í kreppu. Það er
eitthvað meira en smáatriði um verktaka sem er að ræða. Straumsvík hefur verið að skila gróða i áratugi, rafmagnsverðið lengst af hlægilega lágt. Enn skilar hún sínu. Þótt Kinverjar séu að drepa markaðinn með lágu álverði. Ætlar RioTinto
Alcan að fórna verksmiðjunni fyrir principp, varla. Og þó ansi hefur gengið erfiðlega að semja.
Vonandi láta Gylfi Ingvarsson og félagar ekki kremja sig. Ætli það verði jólagjöf Rio Tinto í ár að loka einu stykki álveri?
Hver veit?
Eftirmál: Miðvikudagsmorgunn
Verkfalli aflýst - kjaradeila enn óleyst
Það fór sem mig grunaði. Þrýstingurinn á starfsmenn var of mikill. Auðhringur með Thatcher Íslands í fararbroddi lætur ekki kúga sig. SA tók virkan þátt á bak við tjöldin verkalýðshreyfingin ekki. Eða hvað?
Samninganefnd
starfsmanna álversins í Straumsvík ræður nú ráðum sínum í húsakynnum
ríkissáttasemjara. Þeir héldu fund í morgun í húsakynnum Hlífar í
Hafnarfirði, og síðan gengu helstu forsvarsmenn nefndarinnar á fund
fulltrúa Rio Tinto Alcan á Íslandi og Samtaka atvinnulífsins.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli