Netheimur vinnur fyrstu orustuna, Hrægammar fjárfestinganna hörfa og sjá sitt óvænna.
Í morgun hafa þingmenn barið í bumbur á Alþingi. Hver æsingaræðan á fætum annarri, aldrei þessu vant allir sammála. Þeir börðu á fjarfestingarliðinu sem hafði uppgötvað að það var gullkista falin í Tryggingarfélögunum. Og það átti að tæma þá kistu á stundinni.
Þarna fetuðu Alþingismenn í fótspor ótal bloggara og feisara sem höfðu látið svipuna ríða á jakkafataliðinu. Það er gott hversu almenningsálitið getur sýnt álit sitt betur en áður. Það eru ekki aðrir sem gera það af heilum huga. Og það má ekki sofna á verðinum. Sá sem hefur fengið gullglýjuna í augun, hann á bágt, hans fyrirmynd er Krösus. Því eru hörð átök framundan, um banka og viðhald opinberra stofnana.

Gylfi Gíslason Gullkálfurinn |
Krösusarmmyndir af Wikipediu |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli