Þau eru merkileg okkar frábæru kerfi, sem við breytum öðru hverju, engum til hagsbóta nema klíkuvinum,flokknum og ættingjum.
Þegar við höfum forsætisráðherra sem hvað eftir annað hefur lýst yfir fyrirlitningu á vitrænni umræðu um heilbrigðismál, allt er í góðu lagi svo við þurfum bara að halda áfram að gera of lítið eins og núna.
„Við höfum aldrei sett meiri fjármuni í Landspítalann. Hvað er nóg? Það hefur aldrei verið sett meira í kaup tækja. Við höfum stóraukið framlög til tækjakaupa. Það er rétt að við þurfum að stefna að því að gera betur. Við þurfum líka að gæta að því að ofreisa ekki áform okkar þannig þau hrynji aftur til grunna. Allt sem við erum að gera er afrakstur af verðmætasköpun sem á sér stað,“ sagði hann eitt sinn.
Við höfum heilbrigðisráðherra sem ræður við fátt. Sjúkratryggingar ráða því sem þær vilja ráða. Einkavæðingar andlitin koma undan grímunni.
REGLUGERÐ um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, er glæsilegt plagg ef ekki guðdómlegt í flækjuvísindum. Nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga fær nóg að gera í samskiptum við forstjórann alræmda.
Menntamálaráðherrann er svo sár að það skuli fréttast að leikflétta hans um nýja sameiningu rati í fjölmiðla! Hann læðir skólastjórnendum með í undirbúningsnefnd sem er bundin trúnaði og annar rektorinn kemur sér burt sækir um stöðu konrektors í MH! Hann vill ekki vera viðstaddur þetta niðurbrot Mennta verðmæta. Þau eru mörg ólánstíðindin þessa dagana.

Greiðslur sjúkratryggðs og afsláttarstofn.
3. gr.
Hámarksgreiðsla sjúkratryggðra.
Hámarksgreiðsla sjúkratryggðs almennt í
almanaksmánuði fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari, er
24.600 kr. Fari heildarkostnaður sjúkratryggðs í almanaksmánuði yfir þá
fjárhæð greiða sjúkratryggingar, þ.e. Sjúkratryggingar Íslands eða
viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er, sbr. þó 4. gr.
Hámarksgreiðsla aldraðra, öryrkja, barna og barna með
umönnunarmat í almanaksmánuði fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt
reglugerð þessari, er 16.400 kr. Fari heildarkostnaður í almanaksmánuði
yfir þá fjárhæð greiða sjúkratryggingar, þ.e. Sjúkratryggingar Íslands
eða viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er, sbr. þó 4. gr.
Börn með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu
Þjóðskrár Íslands skulu teljast einn einstaklingur. Hámarksgreiðsla
barna í sömu fjölskyldu, almennt í almanaksmánuði fyrir
heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari, er 16.400 kr. Fari
heildarkostnaður í almanaksmánuði yfir þá fjárhæð greiða
Sjúkratryggingar Íslands eða viðkomandi heilbrigðisstofnun það sem
umfram er, sbr. þó 4. gr.
Til að sjúkratryggðir njóti réttinda samkvæmt þessari
grein ber veitanda heilbrigðisþjónustu að skila reikningsupplýsingum
til Sjúkratrygginga Íslands á því formi sem stofnunin ákveður.
4. gr.
Afsláttarstofn og greiðslur sjúkratryggðs fyrir heilbrigðisþjónustu.
Greiðslur sjúkratryggðs fyrir heilbrigðisþjónustu
samkvæmt reglugerð þessari mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn er
nýttur við ákvörðun á greiðslum sjúkratryggðs við kaup á
heilbrigðisþjónustu. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en
hámarksgreiðsla sjúkratryggðs í almanaksmánuði, sbr. 3. gr.
Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af
hámarksgreiðslu um hver mánaðamót, óháð greiðslum sjúkratryggðs.
Við ákvörðun greiðsluþátttöku sjúkratryggðs vegna
heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari skal leggja saman
afsláttarstofn og greiðslur sjúkratryggðs við kaup á
heilbrigðisþjónustu. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla,
sbr. 3. gr., greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu.
Kostnaður umfram hámarksgreiðslu sjúkratryggðs greiðist af
Sjúkratryggingum Íslands, ef um er að ræða þjónustu sem þær taka þátt í
að greiða, annars af viðkomandi heilbrigðisstofnun.
Menntamálaráðherrann er svo sár að það skuli fréttast að leikflétta hans um nýja sameiningu rati í fjölmiðla! Hann læðir skólastjórnendum með í undirbúningsnefnd sem er bundin trúnaði og annar rektorinn kemur sér burt sækir um stöðu konrektors í MH! Hann vill ekki vera viðstaddur þetta niðurbrot Mennta verðmæta. Þau eru mörg ólánstíðindin þessa dagana.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli