Flokkur eða ekki flokkur. Hreyfing eða ekki hreyfing. Nútímastjórnmál kosta peninga. Og fé er deilt út til flokka og hreyfinga. Líka til þeirra sem ekki náðu inn á þing. Þar eru Flokkur heimilanna og Dögun sem náðu 2,5% atkvæða. Og fá 9 milljónir á ári í 4 ár. Hinir hefðbundnu flokkar frá meira eftir atkvæðamagni og Píratar sem ekki telja sig verða hefðbundna, ekki Fjórflokkar. Ef svo fer fram sem horfir þá fá þeir 80-100 milljónir eftir næstu kosningar. Ég sagði EF.
Hinir þingmannalausu flokkar hafa átt erfiða daga eftir kosningar. Dögun er í sárum meðan allt gengur fyrrum félögum þeirra í Pírötum í haginn. Fundargerðir flokksins sýna það, fámenn klíka situr þar og heldur fulltrúaráðsfundi, lítið að gerast, einhver vandræði með Grasrótina, lítið minnst á peningana sem renna inn, aðalfundur samt verið boðaður í nóvember. Flokkur heimilanna virðist vera í hershöndum, allt í háaloft, kemur mér ekki á óvart þegar alræmdir Útvarp Sögumenn eru á ferð. Ráðuneyti búið að kveða upp úrskurð í vetur sem leið ég veit ekki hvað meira. Svo það er spurning um 40 milljónirnar!
Svo lesendur góðir, þá sá ég að aðalfundur Heimssýnar, uppáhaldssamtakanna minna, er í vikunni. Ég dáist að því hversu vinir mínir, þeir róttækustu af öllum, geta setið í hægðum sínum með höfuðíhaldi landsins. Það er margt furðulegt í pólitíkinni, engin tík fer eins furðulegar krókaleiðir í lífinu. Ég tala nú ekki um þegar maður hefur sérstöðu í bakteríum.
- Björt framtíð: 25.002.659 kr.
- Framsóknarflokkur: 74.079041 kr.
- Sjálfstæðisflokkur: 80.948.996 kr.
- Flokkur heimilanna: 9.156.197 kr.
- Samfylkingin: 38.976.809 kr.
- Dögun: 9.393.645 kr.
- Vinstrihreyfingin – grænt framboð: 32.963.593 kr.
- Píratar: 15.479.059 kr.