Hvað er stjórn BHM að gera? Tekur hún undir svona vinnubrögð? Áður fyrr heyrði maður að þetta væri ólöglegt. Að trúnaðarmann mætti ekki snerta. Þetta segir á vef BHM
Opinberir starfsmenn
Trúnaðarmenn sem starfa hjá opinberum aðilum njóta ákveðinna réttinda og verndar skv. 28.-30. gr. laga nr. 94/1986 um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
- Hann skal í engu gjalda þess í starfi eða á annan hátt að hann hafi valist til trúnaðarstarfa.
- Ekki má flytja trúnaðarmann í lægri launflokk, meðan hann gegnir starfi trúnaðarmanns.
- Trúnaðarmaður situr að öðru jöfnu fyrir um að halda vinnunni ef hann er ráðinn með ótímabundinni ráðningu.
- Trúnaðarmaður hefur rétt til þess að rækja skyldur sínar á vinnutíma.
- Trúnaðarmaður á rétt á því að hafa aðstöðu á vinnustað til að rækja skyldur og hlutverk sitt.
- Trúnaðarmaður á rétt á upplýsingum ef staða losnar á vinnustað hans.
Nánar um vernd trúnaðarmanna
Vernd trúnaðarmanna gegn uppsögn af hálfu atvinnurekanda er hornsteinn þeirra reglna sem gilda um trúnaðarmenn. Verndin er til að tryggja það að trúnaðarmaður geti sinnt skyldum sínum án þess að eiga á hættu að vera sagt upp störfum vegna þeirra. Verndin nær fyrst og fremst til þeirra starfa sem tengjast trúnaðarmannsstarfinu en ekki daglegra starfa hans. Brjóti trúnaðarmaður alvarlega af sér í starfi má væntanlega víkja honum úr starfi og það er ekki tilgangur laganna að halda hlífiskildi yfir starfsmönnum vegna alvarlegra brota í starfi. Það er ljóst samkvæmt þessu að vernd trúnaðarmanns í starfi er ekki alger og að trúnaðarmaður getur þurft að hlíta uppsögn fyrir misfellur í starfi eða brot á þeim starfsreglum á vinnustað, sem starfsmönnum er almennt skylt að hlíta.
Félagsdómur hefur fjallað um vernd trúnaðarmanns í starfi í dómum sínum og þannig hafa mótast ákveðnar reglur um vernd trúnaðarmanna fyrir uppsögn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli