Höfðatorgsgildran teygir út hramma sína núna. Margar myndir og sögur af óförum landans. Og auðvitað er það fólkinu að kenna, ekki hönnuðum sem hlustuðu ekki í mótmælaraddir á sínum tíma.
Kunningi minn lenti í ógöngum þarna í gær. Greip í ljósastaur og hélt sér, tókst að smokra sér upp fyrir Turninn. og komast inn í Túnin.
Ég vann fyrir norðan Turninn á sínum tíma, fylgdist með uppbyggingunni og lenti oft hremmingum á reiðhjólafáki mínum í Borgartúninu. Allir sem vildu vita, sem komu að þessari framkvæmd, vissu að þetta yrði slysagildra. Þegar sá fyrsti lætur lífið þarna þá verður fróðlegt að sjá hver ber ábyrgð?
Ekki benda á mig, sagði Forstjórinn ....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli