Athygli vekur yfirlýsing Stúdentaráðs Háskóla Íslands (ætli það sé ekki stjórn SHÍ?)vegna úrslita í Rektorskjöri HÍ. Sem mbl.is gerir góð skil í dag. Ætli Stúdentaráð hafi verið kallað saman í gærkvöldi til að gefa út yfirlýsingu? Það er einhver pólítískur fnykur af þessu, ætli kosningamaskína Vöku hafi verið
settt af stað til að tryggja sigur Jóns Atla? Ég veit svo sem ekkert um pólitískar skoðanir Jóns Atla og heldur ekki Guðrúnar Nordal, enda er ekki verið að kjósa um þær, ég veit svo sem um stjórnmálaskoðanir konu Jóns Atla, en það er annað mál. En svona yfirlýsing er fallin að velta upp ýmsum spurningum. Samþykkti Stúdentaráð svona yfirlýsingu? Eða var það stjórn Stúdentaráðs? Eða setti formaður þetta saman yfir ölglasi á síðkvöldi og hringdi í stjórnina????
Þetta segir í yfirlýsingu SHÍ að sögn mbl.is:
Stúdentaráð Háskóla Íslands óskar nýjum rektor, Jóni Atla Benediktssyni, innilega til hamingju með sigurinn í rektorskosningunum sem fóru fram í gær. Stúdentaráðsliða hlakkar (sic) til að starfa með honum í framtíðinni og vinna saman að bættum hag stúdenta.
......
Stúdentaráð segir það sjást einna helst á stefnumálum hans, en hann mun koma til með að standa með stúdentum í hagsmunavörslu út á við og tryggja gæði náms við háskólann, ásamt nútímavæðingu kennsluhátta. Stúdentaráð telur að að víðtæk reynsla Jóns Atla, bæði innan háskólans og við nýsköpunarstörf, eigi eftir að nýtast háskólasamfélaginu vel.