Enn sortnar yfir fjölmiðlaflórunni og ólguskýin hlaðast upp. Eigendur pappírsfjölmiðlanna sífellt ósvífnari, ritstjórar eiga að vera þvottatuskur sem hægt er að nota í hvað sem er. Það
hlýtur að vera erfitt að vera í vinnu hjá þessum lýð. Það er ömurlegt að vera blaðamaður í dag. Ég á það, ég má það enn allsráðandi. Einn vinsælasti pistlahöfundur landsins á ekki að þvælast fyrir eigendum. Er verið að segja honum að hans tími sé kominn?
„Í
gær skilaði ég af mér mánudagsgrein samkvæmt venju. Í blaði dagsins
reyndist hins vegar köttur í bóli bjarnar.“ Þetta skrifar Guðmundur
Andri Thorsson, rithöfundur sem skrifað hefur fasta pistla í
Fréttablaðið á mánudögum um margra ára skeið, á Facebook-síðu sína í
morgun. Á þeim stað sem pistill Guðmundar Andra birtast vanalega er þess
í stað grein eftir Jón Ásgeir Jóhannesson, eiginmann stærsta eiganda
Fréttablaðsins, með fyrirsögninni „Að ljúga með blessun Hæstaréttar“.
