Æðsti valdamaður þjóðarinnar er snillingur að setja allt í háa loft. Hann er með heimsmet í því. Hann safnar heimsmetum.
Háskólinn titrar af seinustu útspilum meistarans. Sjálfstæði Háskólans einskis virt. Ráðherrann ætlar að taka yfir friðlýsingar landsins. Hann veit ýmislegt um skipulagsmál það gera líka fleiri. En við viljum hafa lýðræði. Við horfum á of marga valdamenn sem framkvæma og vita allt betur. Þeir hafa komið heiminum á heljarþröm, við þurfum ekki fleiri.
Nú er Landspítalinn floginn á Vífilsstaði. Það liggur ekkert á að fá nýjan spítala, 83.000 manns skipta engu máli. Hvað heldur hann að það taki langan tíma að hanna annað sjúkrahús? Það skiptir
engu máli. Hann er með hugmyndir, við erum líka með hugmyndir, en við
þörfnumst sjúkrahúss sem fyrst. Við þurfum ekki fleiri hugmyndir. Við þurfum framkvæmdir.
Háskólinn titrar af seinustu útspilum meistarans. Sjálfstæði Háskólans einskis virt. Ráðherrann ætlar að taka yfir friðlýsingar landsins. Hann veit ýmislegt um skipulagsmál það gera líka fleiri. En við viljum hafa lýðræði. Við horfum á of marga valdamenn sem framkvæma og vita allt betur. Þeir hafa komið heiminum á heljarþröm, við þurfum ekki fleiri.
Vegna viðbragða rektors og þjóðminjavarðar við yfirlýsingu sem við undirrituð sendum frá okkur 11. mars síðastliðinn um nýjan samstarfssamning Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns tökum við eftirfarandi fram: Fullyrðing þjóðminjavarðar um að samningurinn í núverandi mynd hafi verið kynntur yfirstjórn Þjóðminjasafns og samþykktur af henni stenst ekki, eins og mætti sannreyna með því að skoða fundargerðir framkvæmdaráðsfunda. Samningurinn var vissulega kynntur háskólaráði, sem þjóðminjavörður situr í, en það breytir því ekki að lokagerð hans var hvorki kynnt í samstarfsnefnd Þjóðminjasafns og Háskóla Íslands, þar sem við sátum, né heldur kynnt yfirstjórn Þjóðminjasafnsins með formlegum hætti. Við samninginn hefur bæði verið bætt fjölmörgum atriðum og öðrum breytt sem við höfum aldrei lýst fylgi við og sáum aldrei fyrir undirritun og fengum ekki tækifæri til að ræða á fundum. Okkur sem vorum fulltrúar Háskóla Íslands og Þjóðminjasafns Íslands í samstarfsnefndinni var ætlað að gera hinn nýja samstarfssamning. Við héldum opinn samráðsfund með starfsmönnum og stúdentum innan Háskóla Íslands og starfsmönnum Þjóðminjasafns, vel sóttan og vel heppnaðan. Úr fram komnum hugmyndum og tillögum unnum við á fjölmörgum fundum með tilstyrk tveggja sviðsforseta og setts þjóðminjavarðar. Við töldum að við hefðum komist að ásættanlegri niðurstöðu fyrir alla sem málið snertir en það var þá hrifsað úr höndum okkar og okkur ýtt til hliðar án nokkurra skýringa. Við fullyrðum að við hefðum kosið að bera lokagerð samningsins undir samstarfsmenn, og þar með stúdenta, en til þess gat aldrei komið. 12. mars 2016 Bryndís Sverrisdóttir Helgi Þorláksson Sigurjón Baldur Hafsteinsson Steinunn Kristjánsdótti