Eg játa það að ég flyssaði í gær þegr ég sá hverja Bessastaðir höfðu útnefnd sem krossbera. Eftir að hafa setið og skoðað feril Katrínar í Lýsi og skrifað um hana smápistil í Bloggið mitt, þá skyldi hún birtast þarna með mörgum berum sem eiga það alveg skilið að lífsstarfi þeirra sé minnst með krossi ( þó það séu betri leiðir til að heiðra einstaklinga).
Ég vil nú taka það fram að mér er ekkert sérstaklega illa við þessa konu, frekar en ýmsa aðra sem drógu okkur niður í kviksyndi Hrunsins með ógætilegum gjörðum á þeim tíma. En í henni kristallast hugsunarháttur og spilling sem er hverri fullvalda þjóð hættuleg. Sérstaklega þegar
hún er þess umborin að kasta í okkur hnútum fyrir að minnast þessara atburða og kalla okkur neikvæð og í andlegri kreppu. Sumir Fésbókarvina minntust frægra orða Magnúsar Kjartanssonar þegar Vilhjálmur Þór fékk Krossinn, eftir að samstarfsmaður hans sat uppi með dóm, sem meira að segja Hannes Hólmsteinn hefur sagt frá í pistli:
Þjóðviljinn krafðist þess á forsíðu 20. desember 1959, að Vilhjálmur Þór viki úr bankastjórastarfi vegna Olíufélagsmálsins, og inni í blaðinu rifjaði Magnús Kjartansson upp, að Vilhjálmur hefði hlotið fjölda heiðursmerkja. Þetta væri til marks um, hversu mannkyninu hefði miðað í sókn til fullkomnunar: „Áður voru ræningjar festir á krossa; nú eru krossar festir á ræningja.“ Eru þetta sennilega frægustu orð Magnúsar.
Já, lesendur góðir, heimurinn er oft grátbroslegur, en einhvern veginn er það svo að þessi Krossberadreifing verður táknræn í mínum augum þar sem stjórnmálamenn,starfsmenn ríkisins, listamenn og athafnamenn eru spyrtir saman suður á Bessastaði tvisvar á ári og krossfestir. Þess á milli treysta valdhafar sér ekki að borga starfsmönnum sínum eða listamönnum mannsæmandi kjör. Meðan athafnamenn landsins dæla út milljörðum úr gróðahít atvinnuveganna og reyna koma þeim í öruggt skjól svo þeir þurfi að taka sem minnstan þátt í samneyslu með launaþrælum þjóðarinnar. Ef til vill er þetta líka táknrænt fyrir feril Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta.
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hér er greinin mínn frá 15. júní:
Ég játa ég er neikvæður, ég stunda neikvæða orðræðu gagnvart atvinnulífi og forystumönnum þess.
Ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig seinustu árin, það er eins og þyrmi yfir mig, neikvætt andrúmsloft þyrlast að mér, ég er umlukinn neikvæðri þoku. Hvað á ég að gera, hvað get ég gert. Get ég bætt mig?
Þetta varð mér til umhugsunar þegar ég sá grein Katrínar Pétursdóttur forstjóra Lýsis þessarar konu sem dælir lýsi og Omegasýrum yfir okkar sem gerir okkur svo hraust og glaðlynd að hennar sögn, seinast sem ég hafði séð til þessarar konu fyrir nokkrum mánuðum þá lagði hún sinn skerf fram til að þyrla upp jákvæðni. Hún mætti út í Straumsvík til skipa út áli, hún situr nefnilega í stjórn Rio Tinto Alcan á Íslandi. Þess fyrirtækis sem harðast hefur barist
gegn launafólki sínu seinustu árin. Seinustu árin virðast hafa verið Katrínu góð, en hún fór eins og fleiri fram úr sjálfri sér í Góðærinu sem endaði með gjaldþroti Hnotskurnar, fyrirtækis hennar og Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, en það virðist ekki hafa háð henni að hafa svona skell á bakinu. Hún stendur keik með bros á vör og gefur okkur hinum góð heilræði. Hefur meiri viðskiptavild en flestir.
En hvers vegna er þessi neikvæðni sem hún talar um, á hún einhvern þátt í að hann er til staðar? Detttur nokkrum það í hug? Ætli sé nokkur andleg kreppa í hennar sálarlífi. Hún sem sat í stjórn Glitnis, FL Group, Bakkavör, Viðskiptaráði Íslands, nánustu samstarfsmenn hennar hafa verið á fullu í Sjálfstæðisflokknum, aðrir tengjast sterkustu hlekkjum útvegsmafíunnar og Morgunblaðsins ( Gunnlaugur Sævar og Sigurbjörn Magnússon). Enda hefur hún komið sterk til baka. Hefur púlsinn á þjóðlífinu, við eigum að meta atvinnulífið eins og við metum í íþróttir og afreksfólk.
Já, andlega kreppan okkar hinna? Hvernig stendur á henni? Hvað er það sem við viljum sem veldur? Ætli það sé ekki að losna við þennan græðgissvip atvinnumafíunnar. Við viljum atvinnulíf sem tekur þátt í uppbyggingu mennta, heilbrigðis og velferðarþjóðfélags, sem finnst ekki eðlilegt að fela peninga sína í aflandsfélögum. Sem finnst ekki eðlilegt að hér búi tvær þjóðir. Önnur sem getur gert allt sem henni sýnist í valdi fjármagnsins, hin þar sem stór hluti verður að telja krónurnar á hverjum degi svo nóg sé til fyrir mat og skæði.
Þegar Katrín hefur áttað sig á því þá er hægt að ræða við hana um neikvæða og jákvæða orðræðu. Ekki fyrr.
Úr viðtali í Viðskiptablaðinu:
Neikvætt andrúmsloft gagnvart atvinnulífinu

„Já, það er einmitt svona auglýsing sem ég myndi vilja fyrir atvinnulífið. Einhverja jákvæða og góða tengingu. Við eigum að vera stolt yfir því sem við höfum. Við vorum einu sinni öll stolt yfir því að vera Íslendingar og við vorum öll stolt yfir okkur, okkar atvinnulífi, okkar fyrirtækjum og okkar afreksfólki. Við eigum að halda áfram að vera svolítið stolt.“
Viltu meina að það vanti þjóðarstolt í Íslendinga?
„Það er nefnilega spurningin. Það virðist ekki vanta þegar kemur að afreksfólki, þá erum við öll jafn stolt en þegar kemur að atvinnulífinu þá mættum við vera stolt þar líka. Við eigum það fyllilega skilið að hreykja okkur af íslensku atvinnulífi sem er framúrskarandi og það má líka alveg tala meira um þann árangur sem hefur náðst hér síð- an efnahagshrunið dundi yfir. Má ekki segja bara að íslendingar hafi verið duglegir? Kreppan er búin og komið góðæri en eftir situr andlega kreppan. Það má því vel segja að þessi auglýsing hafi ákveðinn undirtón.“
Neikvætt andrúmsloft gagnvart atvinnulífinu
Þrátt fyrir mikinn uppgang í viðskiptalífinu og samfélaginu öllu um þessar mundir segir Katrín neikvæða orð- ræðu gagnvart íslensku atvinnulífi fara mikið fyrir brjóstið á sér og hafa lengi gert. „Það er alltaf verið að tala niður og kasta rýrð á atvinnulífið. Það er tortryggt í hvívetna og það á sama tíma og við erum að horfa til þess að íslenskt atvinnulíf er að standa sig alveg gríðarlega vel. Það má til dæmis nefna sjávarútveginn þar sem erum við með fyrirtæki á heimsmælikvarða. Íslendingar eru að standa sig helmingi betur en nágrannaþjóðir sínar í umhirðu og fullnýtingu sjávarafurða. Við erum að nýta 75-78% af aukaafurðum samanborið við til dæmi 25-30% í Noregi.
Það er verið að gera svo vel svo víða í íslensku atvinnulífi og mér finnst það hreinlega ekki njóta sannmælis. Almennt finnst mér að það þurfi að koma til meiri hvatningar og viðurkenningar á því sem vel er gert á þessu sviði. Atvinnulífið er algjörlega órjúfanlegur hlutur frá heimilum, almenningi og byggð í þessu landi og mér finnst oft skorta skilning á þeirri tengingu.“ Aðspurð segir Katrín að henni finnist orð- ræðan vissulega hafa versnað í kjölfarið á efnahagshruninu árið 2008. „Það hreiðraði um sig einhvers konar tortryggni og neikvæðni í garð atvinnulífsins. Ég held að ég sé ekki ein á þessari skoðun.“