Svo er hitt hversu margt er undurfagurt, i leik, skipulagi og einstaklingsframtaki það hlýjar manni um hjartarætur. Það nægir ekki að æfa til að verða snillingur. Þetta er líka eitthvað meðfætt, fótboltagenið er langtum göfugra en framsóknargenið!!!!!! Svo koma alltaf nýir furðufuglar fram á sjónarsviðið sem dans inn í Evrópuknattspyrnuna í evru og dollararegni.
Já, svo megum við ekki gleyma þessu, verkfall leikmanna á HM!!!!
Leikmenn Gana hættu við að æfa í gærkvöldi þar sem bónusgreiðslur frá knattspyrnusambandinu höfðu ekki borist.
Þetta staðfesti James Appiah, landsliðsþjálfari Gana, á blaðamannafundi í dag, en framundan er leikur gegn Portúgal á morgun í G-riðli Heimsmeistaramótsins.
Enn fremur staðfesti Appiah að ríkisstjórn Gana hefði gripið inn í málið og eru þrjár milljónir dollara um borð í flugvél sem nú er á leið til Brasilíu til að leysa málið.
Landsliðsmennirnir höfðu krafist þess að fá greiddann fyrirfram samdan bónus fyrir leikinn gegn Portúgal og nú er ljóst að því verður.
Hér er þrenna meistara Suarez !!!!! (utube)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli