Hraði atburða setur allt blogg á annan endann. Flestar færslur á vinsælum bloggsíðum eru úreltar eftir klukkutíma (þó þessi verði klassísk)!
Leikfléttur frambjóðenda (meðvitaðar eður eigi) gerast svo hratt að það er enginn leið að fylgjast með ég fékk mér bara banana eftir seinustu tíðindi morgunsins.
Fléttumeistarinn Ólafur lét sig hverfa af sjónarsviðinu, líklega vegna þess að:
1. Hann var búinn að fá úrslit seinustu skoðanakönnunar og sá sitt óvænna.
2. Hann átti von á fleiri upplýsingum um fjármál konu sinnar.
3. Það býr í honum kjúklingur enn þegar Davíð birtist. Hann hræddist skítlegt eðli Davíðs.
4. Hann vissi að hann fengi það óþvegið í kosningabaráttunni um þýlyndi sitt við útrásarljónin og
aflandshákarlana.
5. Hann leit í spegil og sá andlit manns sem er að eldast eins og við hin og dró rétta niðurstöðu af því.
Valdaharðstjórinn Davíð geystist fram á sviðið vegna þess að:
1. Enn þjáir hann valdafíkn, hann getur ekki hamið sig.
2. Hann sá tækifæri að klekkja á fjandvini sínum á Bessastöðum.
3. Hættir hann við framboðið núna þegar Neimeistarinn er horfinn af sviðinu?
4. Hann sá áramótaskaupið 2001 og Bessastaðaórar blossuðu upp.
5. Hann gat ekki sætt sig við að vera orðinn gamall, þótt hann hefði fjarlægt alla spegla af heimilinu.
6. Grein Hannesar vakti upp í honum metnaðinn, Thatcher, Reagan, Bush, myndirnar voru dásamlegar... Tilfinningin um stöðu hans í valdatafli heimsins ......
Sigurvegari vikunnar er Guðni Th., hann svarar vel og ákveðið fyrir sig. Klappar Forsetanum núverandi blíðlega á kollinn í dag:
„Hann hélt þessari leið opinni að snúast hugur á ný. Ég vænti þess að næsti forseti, hver sem það verður, muni gefa Ólafi það sjálfsagða svigrúm að sinna því sem hann hefur sinnt svo vel, til dæmis
málefnum norðurslóða og framlagi Íslands til notkunar á
endurnýtanlegri orku. Í þessum efnum er Ólafur á heimavelli og
við getum vonandi áfram notið góðs af þessum kraftmikla arfi hans á
þessum vettvangi,“ segir Guðni.
Hefur hrifið landann í umróti stjórnmálanna. Er af góðum alþýðuættum, vinnur hluti vel sem hann kemur nálægt. Bók hans um Gunnar Thoroddsen er frábær. Enn virðist enginn geta skákað honum. En eins og ég sagði í byrjun, hlutirnir gerast hratt. Það er rúmur mánuður í kosningar.
Spyrjum að leikslokum.
Leikfléttur frambjóðenda (meðvitaðar eður eigi) gerast svo hratt að það er enginn leið að fylgjast með ég fékk mér bara banana eftir seinustu tíðindi morgunsins.
Fléttumeistarinn Ólafur lét sig hverfa af sjónarsviðinu, líklega vegna þess að:
1. Hann var búinn að fá úrslit seinustu skoðanakönnunar og sá sitt óvænna.
2. Hann átti von á fleiri upplýsingum um fjármál konu sinnar.
3. Það býr í honum kjúklingur enn þegar Davíð birtist. Hann hræddist skítlegt eðli Davíðs.
4. Hann vissi að hann fengi það óþvegið í kosningabaráttunni um þýlyndi sitt við útrásarljónin og
Bessastaðablús |
5. Hann leit í spegil og sá andlit manns sem er að eldast eins og við hin og dró rétta niðurstöðu af því.
Valdaharðstjórinn Davíð geystist fram á sviðið vegna þess að:
1. Enn þjáir hann valdafíkn, hann getur ekki hamið sig.
2. Hann sá tækifæri að klekkja á fjandvini sínum á Bessastöðum.
3. Hættir hann við framboðið núna þegar Neimeistarinn er horfinn af sviðinu?
4. Hann sá áramótaskaupið 2001 og Bessastaðaórar blossuðu upp.
5. Hann gat ekki sætt sig við að vera orðinn gamall, þótt hann hefði fjarlægt alla spegla af heimilinu.
6. Grein Hannesar vakti upp í honum metnaðinn, Thatcher, Reagan, Bush, myndirnar voru dásamlegar... Tilfinningin um stöðu hans í valdatafli heimsins ......
Sigurvegari vikunnar er Guðni Th., hann svarar vel og ákveðið fyrir sig. Klappar Forsetanum núverandi blíðlega á kollinn í dag:
„Hann hélt þessari leið opinni að snúast hugur á ný. Ég vænti þess að næsti forseti, hver sem það verður, muni gefa Ólafi það sjálfsagða svigrúm að sinna því sem hann hefur sinnt svo vel, til dæmis
Upp upp mín sál ..... |
Hefur hrifið landann í umróti stjórnmálanna. Er af góðum alþýðuættum, vinnur hluti vel sem hann kemur nálægt. Bók hans um Gunnar Thoroddsen er frábær. Enn virðist enginn geta skákað honum. En eins og ég sagði í byrjun, hlutirnir gerast hratt. Það er rúmur mánuður í kosningar.
Spyrjum að leikslokum.
Svo sígild ...... |
Engin ummæli:
Skrifa ummæli