Var að fletta fjölmiðlum helgarinnar sem ég hef aðgang að. Það var ekki jákvæð reynsla. Yfirgengileg yfirhelling auglýsinga og áróðurs, aðallega á svið heilsuiðnaðar og tísku. Satt að segja hefur maður á tilfinningunni að það sé verið að kæfa mann í drasli.
Fréttablaðið reynir að flagga einhverju um helgarnar, pistlahöfundarnir eru ekki fjölbreytt flóra, Steini Páls er stundum með forvitnilega pistla, er líklega fordómalausasti hægrimaður landsins. En það vantar alla breidd í pistlana. Sá eini sem mér finnst verulega skemmtilegur er Pavel, maður þarf ekki alltaf að vera sammála til að njóta hugleiftra hans.
Eina fréttin bitastæð var um sölur Orkuveitu Reykjavíkur, þar kemur mér svo sem ekki á óvart hversu erfitt er að selja stór fyrirtæki og eignir, fjármagn er erfitt að fá alls staðar, þetta sagði seinasta ríkisstjórn landsmönnum en þeir trúðu þessu aldrei og urðu því auðvelt fórnarlamb óábyrgra stjórnmálaafla xB og xD.
En minnumst á það sem er gott, það var einstaklega skemmtilegt viðtal við heimsfrægan íslenskan arkitekt sem ég hef aldrei heyrt minnst á, Jórunni Ragnarsdóttur, það var svona hlýlegt og náttúrulegt.
Fréttatíminn virðist sérhæfa sig sem kvennamiðill ég taldi 8 heilsíðuviðtöld og greinar þar sem 7 voru um konur og 1 um kall, ef ég man rétt. Gunnar Smári er stundum með skemmtilega pistla. En gagnrýnin blaðamennska? Nei það var ekki mikið af henni. Það verður vera meiri fjölbreytni svo ég fletti þessu blaði og lesi. Gunnar Hersveinn var með smápistil góðan Annað var heilsa, mataræði, prjón og hekl, ennþá vantar helgarblað fyrir fólk sem vill fylgjast með fréttum, menningu, listum á gagnrýninn hátt.
Það getur maður keypt á netinu frá útlöndum, svo hugurinn leitar æ meira þangað um helgar,
En það er RÚV, sjónvarpið á sunnudagskvöldum sem ber af fjölmiðlunum um þessa helgi, í gærkvöldi var það skemmtilegt við Ragnhildar Steinunnar við Kára Helgason, doktorsnema í Ameríku, gaman líka að sjá gamalt kunningjafólk úr Borgarnesi, foreldra hans; og þáttur Víkings Heiðars, Höllu Oddnýjar og Viðars Víkings um klassíska tónlist. Loks norska framhaldsmyndin Halvbroren, hún hefur gripið mig, og sjónvarpið er meira að segja farið að auglýsa sérstaklega norræna þætti og myndir sem eitthvað sérstakt, það er nýtt. Svona á dagskrá að vera, ég missti að vísu af myndinni um fyrri heimsstyrjöldina seinustu tvo sunnudaga eftir sögu Sebastians Faulks. Svo er Broen II að koma ég bíð spenntur.
Já lesendur góðir það haustar, stormurinn æðir um landið, það er eins og allt gerist fyrr núna, ég man þegar ég bjó í Borgarnesi þá tók maður upp kartöflurnar í byrjun október. En morgnarnir eru nú fallegir. Þessir myndir eru teknar um sexleytið að morgni í seinustu viku.
mánudagur, 16. september 2013
laugardagur, 14. september 2013
Verðlaun: Arnaldur, okkar maður í útlöndum.
Arnaldur er okkar maður, við gleðjumst með sigrum hans. Nú eru það spænsk verðlaun fyrir ótútgefna bók. Og hann sigrar. Við ljómum, við glitrum af gleði. Bókin heitir Skuggasund , mbl.is ýsir söguþráæðinum: „Skuggasund gerist í stríðinu. Árið 1944 finnst stúlka kyrkt á bak við Þjóðleikhúsið sem þá var birgðastöð fyrir herinn. Sagan gerist síðan í samtímanum þar sem lögreglumaður sem kominn er á eftirlaun kannast við þetta gamla mál og byrjar að garfa í því þar sem það virðist aldrei hafa verið leyst.“
Það verður gaman að lesa bókina. Allar bækur hans hafa ekki verið góðar, en margar. Heilsteiptur stíll, persónur sem maður lærir að meta. Sem lifa með manni.
Mýrin var góð á filmu, ég hef séð hana á íslensku, þýskur og frönsku. Döbbingin á þýsku var mjög góð. Samt er Ingvar ekki minn Erlendur, maður býr sér til ímynd af persónunni, og Ingvar er ekki hún hjá mér. Samt er hann góður. Enn er enginn sem hefur leikið Wallander minn Wallander. Svona starfar hugurinn.
Arnaldur er líka eini höfundur okkar sem er víðfrægur. Maður sér það í Svíþjóð, Þýskalandi, Frakklandi, alls staðar er hann áberandi. Við gleðjumst með okkar manni. Við lesum hann, hann hefur tekið við Alistair Mc Lean sem ótrúlegur fjöldið las á jólanóttina fyrir nokkrum áratugum. Það er gott að hafa svona höfund til að halda forlagi gangandi.
Svo er hann svo íslenskur, genin hans eru mynduð úr mold, grjóti og grasi. Svo auðvitað elskum við hann öll . Ef einhver segir eitthvað annað þá er hann að ljúga.
Ég er viss um að Sigmundur Davíð og Vigdís Hauks hafa stafla af bókum hans á náttborðinu.

fimmtudagur, 12. september 2013
Ósigur menntamálaráðherra
Stúdentar HÍ höfðu sigur gegn ráðherranum sem með óbilgirni streittist við. En sá svo að hann var á röngum nótum. Og bakkaði.
Ég veit heldur ekki hvort þessi endalausa endurtekning hans um stöðuna á Norðurlöndum stenst, sérstaklega þar sem töluverður hluti fjárveitingar þar er hreinn og beinn styrkur. En meira um það seinna.
Stjórn Stúdentaráðs situr upp með pálmann í höndunum gagnvart umbjóðendum sínum. Gott að Vaka er farin að feta í fótspor Röskvu og Verðandi sem létu ekki tæta yfir sig. Sem gamall stúdentaráðsfulltrúi gleðst maður.
Til hamingju, kötturinn minn gleðst líka.

Gylfi Æ, JBH, Ríkisstjórn, Sýrland og áhyggjur
Á ég að hafa áhyggjur og áhuga á kynlegum klögumálum Gylfa Ægis. Nei, hann burt.
Á ég að hafa áhuga á kjánaskap JBH þegar hann vill minna okkur á mannvitsbresti sína nótt og nýtan dag. Þegar bæði hann og hluti fjölskyldu hans virðist ekki geta sætt sig við að fjölskyldufaðirinn er ekki allur sem hann er séður? Nei, hann burt úr hugskoti mínu. Mér finnst merkilegur þessi stóri hópur valdamanna sem taka afstöðu með honum. Út frá lögfræðilegum forsendum þegar siðferðilegar og mannúðlegar forsendur ættu að ráða afstöðu manns.
Á ég að hafa áhuga á yfirlýsingum forráðamanna stjórnmálaflokkanna í ríkisstjórn hversu ofsafengnar þær eru: þar sem heimsyfirráð og hófsamar launakröfur fara saman. Minna einna helst á drauma íslenskra fótboltaáhugamanna. Líklega verð ég að fylgjast með því. Kyrrt í huga mínum.
Á ég að hafa áhyggjur yfir seinustu þáttum í atburðarás Sýrlandssorgarleiksins? Þar sem heimsveldið og samkeppnisaðilar þess setja Sameinuðu Þjóðirnar til hliðar með ósvífnum brelluleikjum sínum? Já ég hef áhyggjur. Manni rennur til rifja meðferðin á aumingja fólkinu sem býr þar. Maður á erfitt að setja sig i þeirra spor. Það er sárt að sjá heilu samfélagi vera sundrað af valdagráðugum valdsmönnum.
Svona eru hugleiðingar mínar á þessum fimmtudagsmorgni. Það sækir óró að mér. Lífið er of erfitt hjá mörgum. Ég minnist atburða dagsins í gær fyrir 12 árum, ég minnist atburðanna í Chile fyrir 40 árum. Við mannfólkið virðumst oft hreyfast lítið úr stað.
Ég hlusta á Davy Graham spila túlkun sína á þjóðlögum á kassagítar á meistaralegan hátt og pæli. Þetta er prédikanir okkar í dag.

WebRep
currentVote
noRating
noWeight
þriðjudagur, 10. september 2013
Sumar á Sýrlandi (not)
Það er engin furða þótt gamli snillingurinn John le Carré eigi fábreytt orð um stjórnmál nútímans:
“I do think we live in most extraordinary period of history,” he says now. “The fact that we feel becalmed is the element that is most terrifying, the second-rate quality of leadership, the third-rate quality of parliamentary behaviour.”
Ég held að við lifum stórfurðulega tíma. Staðreyndin að við lifum þá í rólegheitum er sá þáttur sem er mest ógnvekjandi, annars flokks stjórnun leiðtoganna, þriða flokks frammistaða þingliðs.
Hann bætti því að vísu við að hann hefði orðið smástoltur yfir þingi heimalands síns að segja nei við enn einni aðildinni að stríði sem taglhnýtingur Bandaríkjamanna.
En allt framferði stórvelda nútímans sannar þessi ummæli rithöfundarins, þessa meistara kaldhæðnu kaldastríðssögunnar. Það er ótrúlegt að Öryggisráðið sé notað til þess að við getum orðið vitni að útþurrkun heils ríkis og dauða hundraða þúsunda, sköpun eins stærsta flóttamannavandamáls seinni tíma. Og svo endar þetta í eiturefnahanastélsboði. Þar sem enginn vill kannast við að hafa efnt til veislunnar.
Á meðan karpa stórveldin og senda hvert öðru glósur alla daga. Og það skiptir höfuðmáli hvort Forsetinn hafai sjálfur fyrirskipað notkun eiturefnanna. Eins og hann beri ekki ábyrgð á gjörðum herja sinna??? Nema hann sitji valdalaus í einhverju neðanjarðarbyrgi og bíða örlaga sinna.
Nú álpaði utanríkisráðherra Stórveldisins í vestri út úr sér þrugli um að Sýrlandsher eyði eiturefnabirgðum sínum svona óvart.Og Rússar tóku hann á orðinu, líklega af illgirni. En líklega verður þetta til þess að Bandaríkjaforsetinn friðsami sleppi úr heitingum sínum um loftárásir til að knýja fram samingaviðræður. Sýrlandsher skilar eiturefnum sínum. Svo eigum við bara að halda áfram að horfa á þetta ríki lagt í rúst. Þar sem flugher landsins heldur uppi endalaustum árásum á landa sína. Stórskotalið lætur sprengjum rigna yfir borgir. Vopnasalar allra landa lifa í vellystingum sem aldrei fyrr. Og tugir þúsunda munu halda áfram að flýja til landanna í kring. Eins og þau eigi ekki nóg með sig sjálf. Líbanon sem varð að lifa 15 ára borgarastyrjöld. Írak sem er í tætlum eftir innrás okkar Vesturlanda þar sem þetta fyrrum velstæða ríka er rústir einar. Tyrkland sem hefur verið á barmi borgarastyrjaldar.
Það er grátlegt að horfa upp á niðurlægingu Sameinuðu þjóðanna það er engin furða þótt maður hugsi um örlög Þjóðabandalagsins á seinustu öld. Og stórveldin halda áfram að lítiilækka þetta fjöregg okkar að grafa undan því endalaust. Svo þau geti haldið áfram að deila og drottna sjálfum sér til hagsbóta. Fólkinu í heiminum til ógagns meðan við bíðum eftir áhrifum umhverfis- ógnvalda sem enginn vill minnast á. Hvorki úti í hinum stóra heimi eða í henni litlu Reykjavík þar sem allt fer í bál og brand út af landsvæði sem líklega verður komið undir sjó eftir 100 ár.

mánudagur, 9. september 2013
Ríkisfjármál: Amatörar eiga leik
Skorið niður til kvikmynda
segir stórum stöfum í mbl.is í dag. Það kvisast úr smátt og smátt amatöralegir tilburðir nefndarinnar frægu um sparnað ríkisins. Nú á Guðlaugur Þór leikinn eftir að þaggað var niður í Vigdísi Hauks.
Hann verður óðamála um eftirlitsiðnaðinn sem hefur blásið út í tíð seinustu ríkisstjórnar.
„Að forgangsraða í þágu eftirlitsiðnaðarins er röng forgangsröðun. Forgangsröðunin hjá ríkinu var galin í tíð fyrri ríkisstjórnar.“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður og varaformaður hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar.Nú á er kvikmyndaiðnaðurinn aftur undir hnífnum:
segir mbl.is, auðvitað á að herða hálstökin aftur á kvikmyndafólkinu. Eftir að stutt er síðan féð var aftur aukið til þeirra. og hann bætir um betur:
„Ég efast ekki um að ríkisstjórnin fari yfir þessi útgjöld eins og önnur með gagnrýnum hætti. Fjárfestingaáætlunin bar þess merki að það var skammt til kosninga og því miður eigum við ekki fyrir þessum útgjöldum, heldur eru þau tekin að láni með ærnum tilkostnaði. Það þarf ekki aðeins að líta til fjárfestinga heldur líka rekstrarkostnaðar,“ segir Guðlaugur Þór sem gagnrýnir m.a. áform um að ríkið leggi til samtals um 3,6 milljarða króna vegna náttúruminjasafns í Perlunni á næstu 15 árum.
Líklega hefur hann gleymt að ferðamannaiðnaður skilar milljörðum á hverju ári. Og ferðamenn þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni og borga inn á. Náttúruminjasafn á eftir að gera Perluna að fastastað túristanna, umhverfisperlu Reykjavíkur og landsins.
Og Vigdís Hauks verður líka að eiga smá innlegg: „Ég get staðfest að við erum að skoða fjárfestingaáætlunina. Við erum að skoða alla póstana. Þetta er jafnframt til skoðunar í fjármálaráðuneytinu. Það liggur allt undir.“
Kvikmyndamenn eru furðu lostnir, Friðrik Þór á orðið:
"Að skera niður í Kvikmyndasjóði er eins og að skjóta mjólkurkúna“
„Síðasta ríkistjórn skar kvikmyndasjóð heiftarlega niður - en eftir að fjármagnið var aftur aukið hefur orðið 238 prósent veltuaukning í kvikmyndaframleiðslu – þá eru myndbönd og sjónvarpsefni tekin með. Fjölgun ársverka voru tæplega sex hundruð,“ segir Friðrik, jafnframt.
segir Friðrik Þór Friðriksson;
„Þetta getur hver maður séð - þetta eru heimildir frá Hagstofu,“ bætir hann við.
„Síðan er erlend fjárfesting í kvikmyndaverkum langt yfir milljarði þannig að tekjur ríkisins – af hækkuninni – verður reiknaður upp á 1,2 milljarða rúmlega,“ segir Friðrik.
Og auðvitað hefur Guðlaugur Þór ekkert frétt af þessu: „Ég kem algjörlega af fjöllum“ segir Guðlaugur Þór Þórðarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem á sæti í hagræðingarhóp ríkisstjórnarinnar þegar hann var inntur eftir viðbrögðum um frétt Morgunblaðsins um að 40 prósent niðurskurður til Kvikmyndasjóðs Íslands sé til skoðunar.
Já, lesendur góður, amatörarnir ráða ríkjum, þeir koma bara af fjöllum þar sem þeir vilja auðvitað að eftirlitsiðnaður og listageirinn sé skorinn við trog. Hinn frjálsi fjármálaiðnaður á auðvitað að hafa frítt spil. Við höfum svo góða reynslu af því.
sunnudagur, 8. september 2013
SUS, xD: Bros til sölu ......
Hæstbjóðendur: Kjósendur.
Stefna : Eitthvað til að svíkja
Verð: Of hátt
Orðatiltæki: Nothing is so admirable in politics as a
short memory.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)