Það er óhugnanlegt á Íslandi hvernig viðskipti og stjórnmál blandast saman.
Starfsmaður sérstaks saksóknara er ákærður fyrir skrítin vinnubrögð sem tengjast rannsókn á hendur Milestone einu stærsta svikamáli íslensks viðskiptalífs, inn í þau mál eru innblönduð fjárfestingafélagið Máttur ehf og Sjóvá Almennar.
Sami starfsmaður, doktor í afbrotafræði, kærir starfsfólk sérstaks saksóknara að hafa farið gáleysisleg með hleranir í rannsókn ákærumála og ekki gætt trúnaðar.Líklega til að gera dómsmál gegn sér tortryggilegt.
Dómsmála/forsætisráðherra vill rannsókn á þessum vinnubrögðum sérstaks, finnur leið til að skipta sér af dómsvaldinu.
Fjármálaráðherrann Bjarni Benediktsson tengdist þessu Milestone máli á ýmsan hátt, einnig föðurbróðir hans.
Faðir Dómsmála/forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugsonar tengdist Milestone/Mætti á ýmsan hátt.
Hver er vanhæfur og hver ekki ????????????
____________________________________________________
Gamlar fréttir :
Máttur kominn í þrot
• Fjárfestingafélagið var umsvifamikið í fjárfestingum á árunum fram að hruni • Stór hluthafi í Icelandair og BNT
Bjarni gegndi lykilhlutverki í að koma viðskiptunum í
gegn. Það gerði hann sem stjórnarmaður í BNT. Hann skrifaði upp á umboð
sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja hultabréf félagsins í
eignarhaldsfélaginu Vafningi 8. febrúar 2008. Það reyndist vera
mikilvægur hlekkur í umfangsmiklum viðskiptum sem höfðu þann tilgang að
gera Milestone og ættingjum Bjarna kleift að borga Morgan Stanley 45
milljarða. Öðrum kosti hefði Milestone væntanlega farið á hliðina, með
mögulegri keðjuverkun fyrir tengd félög.
Bjarni var einn þriggja stjórnarmanna frá eignarhaldsfélaginu BNT sem
skrifaði upp á umboðið sem veitti honum sjálfum heimild til að veðsetja
hlutabréfin í Vafningi, sem hélt utan um fasteignaviðskipti með
lúxusíbúðir í Makaó suður af Kína. Hinir tveir mennirnir voru
stjórnarmennirnir Jón Benediktsson og Gunnlaugur Sigmundsson, sem er
þekktur athafnamaður og meðal annars faðir Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins.“
Saga Fjárfestingafélagsins Máttar ehf. líður senn undir lok, en nýverið
var tilkynnt að bú þess hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta í kjölfar
úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur.
Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is
Saga Fjárfestingafélagsins Máttar ehf. líður senn undir lok, en nýverið
var tilkynnt að bú þess hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta í kjölfar
úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur. Félagið var að stórum hluta í eigu
þeirra Karls og Steingríms Wenerssona í gegnum Milestone-fyrirtækjasamstæðuna.
Starfsemi félagsins fólst í fjárfestingum í skráðum og óskráðum
hlutabréfum. Í árslok 2007 voru heildarskuldir Milestone við íslenska
banka tæpir 43 milljarðar króna. Máttur var eitt gríðarmargra félaga sem
tengdust Milestone eignatengslum, miðað við 20% eignarhlut síðarnefnda
félagsins. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að
áhættuskuldbindingar Glitnis, það er að segja lánveitingar, til Máttar
hafi numið 14,5 milljörðum króna hinn 30. september árið 2008. Hinir
bankarnir mátu Milestone og Mátt ekki tengda aðila, þrátt fyrir
eignatengslin.
Hlutir í BNT og Icelandair
Eigendahópur
Máttar breyttist nokkuð með tímanum. Á meðal annarra eigenda voru
Sjóvá, sem var í eigu Milestone, í gegnum eignarhaldsfélag. Aðrir
eigendur voru Einar Sveinsson, sem jafnframt gegndi stjórnarformennsku,
og Gunnlaugur Sigmundsson, fyrrverandi alþingismaður, sem gegndi
jafnframt stöðu framkvæmdastjóra. Ein stærsta fjárfesting Máttar var
hlutur félagsins í Icelandair, en Einar Sveinsson var jafnframt
stjórnarmaður í Icelandair þegar viðskiptin áttu sér stað, samkvæmt
tilkynningu til Kauphallarinnar. Auk tæplega fjórðungshlutar í Icelandair, sem Íslandsbanki leysti til sín í fyrra, er hlutur Máttar í BNT, eignarhaldsfélagi N1, á meðal stærstu fjárfestinga.