Já það byrjar en samt hefur það enga byrjun og engan endi. Nú eru tónleikar allt árið. Það er ekki bara Harpa. Það er Háskólabíó. Laugardalshöll, engin Egilshöll lengur. Margir fínir litlir staðir, Kex, Rosenberg, djasshátíð á Jómfrúnni sem er ekki lengur nein Jómfrú.
En nú er Sinfonían byrjuð. Flottir tónleikar í gærkvöldi. Fullur salur, 1700 manns, mikill glasaglaumur, vinir og kunningjar hittast, sögur er sagðar, sumarið gert upp. Scheherezade og Myndir á sýningu. Flottir einleikarar, Sigrún Eðvalds, Bryndís Halla, Siggi Flosa, tréblásarar og fleira og fleira. Fyrsta sinn sem maður heyrir þessi verk í Hörpu. Þvílíkur munur. Og enn er Kjartan M. að spyrja um hvað Harpan hafi kostað. Ég hef aldrei séð hann á sinfoníunni. Þeir sem tala mest um kostnað eru þeir sem kunn minnst að njóta lista. Peningar er þeirra lyst.
Vestmanneyingarnir gætu litið við á tónleikum í Hörpu um leið og þeir fara að versla í Smáralind og Ikea. Svo er Kammermúsíkklúbburinn að byrja. Jazzhátíð um daginn. Sparíféð mitt fer í þetta. Það gefur mínu lífi gildi. Svo Þjóðleikhúsið, bíð spenntur eftir Eggerti Þorleifs í nýja verki Braga. Og Ólafur Darri sem Hamlet i Borgarleikhúsinu og Vanja frændi í Tjarnarbíó. Mig langar aftur á Engla Alheimsins. Svo er að fjármagna allt þetta, ég hef ekki efni á því.
Egill Ólafs í Hörpu, ný Emiliana Torrini, Eruð þið búin að hlusta á Hjaltalín diskinn frá því um seinustu jól, Retro Stefson frá því í hitteðfyrra???? Svo er nýr Dylan diskur í búðunum, Another Self Portrait.
Það er allt að gerast með haustinu. Flugvöllurinn og fótafúi. Það er skrítið hvað fólk nennir að karpa um stað sem verður kominn í kaf eftir Hundrað ár.
Mér finnst nú algjör óþarfi að vera að snörflast út í Forsætisráðherra okkar þótt hann sé með smá sýkingu. Það er nú bara eðlilegt sagði vinur minn: „ Þetta fylgir starfinu það er mjög eðlilegt að maður í hans stöðu fái verðbólgu í hagfótinn. Sjáðu Ríkharð þriðja hann fékk bandorma í sig." Ég skildi nú ekki alvega samanburðinn. En hann sagði að það væri ekki von ég væri með staurfót. Sjáðu, sagði hann: „Staurfótur Hagfótur." Já hann vinur minn er ekki alltaf auðskiljanlegur, enda verið á framfæri ESB of lengi. Því eins og leikarinn sagði um árið: Behind every great man is a woman rolling her eyes. Ég hugsa þetta eigi bæði við um Obama og forsætisráðherrann okkar.
Og allir bíða eftir svarinu um náðun Sigurðar Kárasonar. Dularfyllsti atburður vikunnar. Stundum kann forseti vor að þegja. Og Vigdís Hauksdóttir. Eða hvað?
Það er mikið rætt um svikara í fjölmiðlum. Það orð er ekki endilega notað um þá alla. Einn er þó kallaður stórsvikari. Sem hefur haft einstakt lag á að koma sér inn á einstaklinga og vinda fjármuni þeirra út úr þeim þar til enginn dropi var eftir. Sjúklingar, gamalmenni, fólk úr ýmsum stéttum.
Svo eru þeir sem tókst jafnvel að vinda fjármuni úr heilli þjóð og bankakerfi. Þeir eru ekki kallaðir svindlarar þótt þeir séu auðvitað stjórsvindlarar, stórglæpamenn. Þeir mæta glaðbeittir fyrir rétti, sumir með hrokasvip aðrir ekki. Þeir hafa tekið sér bólfestu erlendis og síðan ýta þeir seðlum sínum hægt og sígandi inn í samfélagið okkar. Það er margt á góðu verði um þessar mundir. Þeir virðast vera á því að þeir hafi ekkert gert. Voru eingöngu að bjarga þjóðinni, að koma okkur á spjöld sögunnar og tókst það. Sumir valdsmenn sem einu sinnu voru harðir andstæðingar þessara manna núna mega ekkert misjafnt heyra um þá. Þetta eru nær allt karlar. Ætli konur séu ekki jafn duglegar að svindla? Ætli það sé þess vegan sem þær eiga ekki að hafa jafnan rétt til setu í æðstu stjórnum lífeyrissjóða????
Já, þetta eru ófá mál sem liggja nú fyrir. Allir eru saklausir, Milestone, Kaupþing, Glitnir, Landsbanki, KPMG. Þetta eru allt góðborgarar og maður kallar þá ekki svikarar eða skúrka. Þeir voru sumir í nánu sambandi við ráðherra í núverandi ríkisstjórn. Því eigum við öll að gleyma. Þetta eru ekki brennuvargar þetta eru Góðborgarar. Ef einhver segir eitthvað þá er lögfræðingakórinn til staðar eins og í grískum harmleik eða gamanleik. Og þegar upp er staðið eru dómarnir haldlitlir, oft minni en smákrimmi fær fyrir að ræna sjoppur þrisvar eða fjórum sinnum. Enda eigum við að gleyma þessu.
Ætli við séum ekki búin að því? Ég man alla vegana fátt. Enda gamall eins og á hærum má sjá.
Hjá mér er hátíð þegar nýr diskur meistara Dylans lítur dagsins ljós. Nýr diskur með gamalli og þó síungri tónlist. Hvert er hann að fara núna, hann Erling? Líklega myndi hann flokkast undir fíkil, tónlistafíkil. Framundan er gósentíð fyrir slíkt fólk, sinfonían að byrja á fimmtudaginn. Rússnesk gæðatónlist á fyrstu tónleikunum, Rimsky -Korsakov og Mussorgsky. Scheherazade, Myndir á sýningu. Svo margt annað í vetur, lífið er ekki svo bölvað, þrátt fyrir ónýtt hné. Paul Lewis kemur og spilar í Hörpunni seinna í haust.
Já, ég var að tala um Meistara Dylan, Another Self Portrait. Önnur Sjálfsmynd. Einu sinni gaf Dylan út Selv Portrait, árið 1970. Sú plata, þá voru allt plötur sem komu út, fékk misjafnar móttökur. Hvaða skítur er þetta spurði frægur gagnrýnandi og tónlistarrýnir. Skrítið lagaval, úr hinni og þessari átt, frumsamin lagabrot, furðulegar útsetningar. Kvennakór. Í dag er töluvert annað á hlusta, á tímum póstmódernista!! Nú opnast þessi heimur Dylans á allt annan hátt en fyrir fjörutíu og eitthvað árum. Við höfum þroskast, náð meistaranum. Og nú á nýja disknum, fáum við ný lög frá þessum tíma. Aðrar útsetningar af gömlu plötunni, útþurrkuð lög þar sem útsetningarnar eru teknar burt. Og eftir eru bara Dylan, David Bromberg og Al Kooper (þið munið eftir honum á Lika a rolling stone og svo framvegis). Svo kemur Georg Harrison í heimsókn. Og fleiri. Stundum syngur Dylan himneskt, eins og í Pretty Saro, þvílík raddbeiting!!! Aftur á móti hef ég aldrei skilið fólk sem finnst Dylan, Waits og Megas ömurlegir söngvarar, það er þeirra vandamál ekki mitt.
Þessi diskur er svo skemmtilegur, nútímalegur, fagur. Við heyrum If not for you með fiðluleik og enginn veit hver er fiðluleikarinn !! New Morning með blásurum,. Þetta er árið þegar Dylan gaf líka út New Morning á sama ári. 1970. Sign on the Window. Spanish is the loving tongue. Það er ótrúleg fjölbreytnin, sköpunin hjá þessum unga manni. Ég man þegar ég grúfði mig ofan í útvarpið til að hlusta á Franska útvarpsstöð þar sem Selv Portrait hljómaði í fyrsta sinn í Evrópu. All the tired horses, stelpur að syngja er þetta Dylan??? En svo kom Days of 49.
Já, það er oft hamingja að vera tónlistarfíkill. Nú klukkan 8 að morgni, miðvikudaginn 4. september, hlusta ég á Otis Redding. Hann grætur og grætur yfir ástinni. Hann er prédikari og graðnagli um leið. Try a little tenderness, I´ve been loving you too long, Respect, Tramp. Og auðvitað Docks of the Bay.
Svo eru 2 nýir klassískir diskar sem ég þarf að hlusta á næstu dagana. Domingo Verdi og Christian Gerhaher Mahler. Ertu búinn að fá þér Spotify í tölvuna, lesandi góður? Þar er nóg af tónlist fyrir lífstíð. Það er gott að njóta og hlusta. Hverfa frá dapurlegum heimi stríðs og gróða.
Og lífið heldur áfram, og áfram.
Við höfum lifað ógnvænlega þögn, þögn sem er svo hávær að hún öskrar. Þögn Vigdísar Hauksdóttur. Ef til vill er þessi þögn forsenda fyrir ráðherraembætti. Hver veit. En ekki man ég eftir að hafa séð yfirlýsingu eða heyrt frá því fyrir miðjan ágústmánuð. En við þurfum ekki að örvænta. Hún hefur fengið verðugan arftaka. Brynjar Níelsson.
Nú gleður hann okkur oft í viku með lipurleika sínum á bloggsíðu sinni: Þetta er maður sem kann sína lögfræði. Lögfræði sem virðist ekkert að hafa að gera með siðfræði, mannlega reisn. Hrein og bein lögfræði. Við sem erum ósammála honum leyfum okkur að láta í okkur heyra. Hann hefur illilega misskilið leikritið um brennuvargana. Brennuvargarnir eru þeir sem hafa gleymt hinum mannlegu vídd sem lyftir okkur yfir hið dýrslega. Við leyfum okkur að hafa skoðun á því að siðleysingjar sem vaði uppí í samfélagi okkar eigi ekki að hafa allan rétt þar sem þeim er oft hampað af fólki eins og Brynjari sem finnst að markaðurinn og lögfræði tengd honum eigi að stjórna öllu lífi okkar.
„Lögreglan leysti yfirmann kynferðisbrotadeildarinnar frá störfum vegna þess að brennuvargarnir voru ekki sáttir við varnaðarorð hans sem gætu nýst til að fækka kynferðisbrotum. Rútubílstjóri var hrakinn frá störfum vegna dóms í kynferðisbrotamáli, sem hann þó hafði afplánað. Hótel Saga sýndi af sér fádæma hugleysi þegar fólk frá ameríku var hrakið á brott vegna atvinnu þeirra við gerð kynlífsmynda í heimalandi sínu. Óþarfi er að rifja upp geðveikina kringum mál Egils Einarssonar og allt hugleysið tengt því.“
Ég verð nú að viðurkenna að snaggaraleg viðbrögð Vigdísar eru ansi skemmtilegri en pistlar Brynjars. Ég vona að hún sé ekki horfin inn í ráðherradrauma. Við þörfnumst yfirlýsinga hennar, við bíðum spennt eftir gullkornum hennar úr ræðustól Alþingis. Það er ekki hægt að segja að Sigmundur Davíð og Bjarni fái mann til að grípa andann á lofti. Það örlar varla á þeim leiftrandi hugmyndum sem koma frá Vigdísi. Við áttum okkur á því að við söknum hennar.
Vigdís komdu aftur, við iðrumst!!!
Ég veit ekki hvort ég eigi að hafa skoðun á JBH. Og þó. Ekki hef ég séð að hann hafi beðið almennilega afsökunar. Í dag fer hann fram úr sjálfum sér í grein í Fréttablaðinu, sýnir hroka, sýnir siðleysi .
Ég fór og rifjaði upp helstu þætti þessa máls sem um ræðir. Ég hafði verið illa að mér í mörgum þáttum þessarar sorgarsögu fjölskyldunnar. En um daginn þegar ég var á læknabiðstofu rakst ég á Nýtt líf. Mér varð eiginlega bumbult. Miður mín. Það er ekki verið að ofsækja hann. Orðið dómgreindarleysi á ekki við, það er eitthvað langtum sterkara.
Þess vegna finnst mér að hann hafi ekki erindi inn um ungt fólk í HÍ. Mér er sama hvað fólk segir um dómstóla og sakleysi. Hann er sekur um slæm brot í samskiptum. Hann skrifaði bréf til ungrar stúlku sem ennþá var barn samkvæmt laganna hljóðan, hann uppgekkst hana á þann hátt sem maður umgengst ekki börn. Ég styð þessa ungu konu sem lenti í krumlum hans, þótt hún væri mörg ár að uppgötva sárin sem hann olli henni. Hann brást okkur sem embættismaður, sem ættingi, sem uppalandi.
Svo hann á ekkert erindi í kennslu í HÍ, jafnvel þótt hann viti margt. Hann er klár, gáfaður, greindu. Það er ekki nóg. Ég vona að hann sættist við sína nánustu. Ég vona að hann sýni iðrun.
Enn á ný opinberast hvernig ríkisstjórnin ætlar að hunsa meirihluta þjóðarinnar. Eftir nokkurra ára ferli finnst fleiri að það eigi að klára viðræðurnar svo við sjáum hvað okkur býðst. Það væri ansi gott að sjá samning þar sem maður getur sagt já eða nei.
Þá getum við séð hvað það er sem fáum eða ekki. Ég er jákvæður sem Evrópusinni en um leið kýs ég ekki hvaða samning sem er. Hann verður að vera góður. EF hann verður góður fáum við jafnari lífskjör og meiri festu í grundvallarmálum okkar. Þar eigum við að bera okkur saman við Norður og Vestur -Evrópuþjóðir sem hafa líkari þjóðfélagsbyggingu en Suður og Austur- Evrópa. Við höfum svo margt að vinna með því að ná meiri tengingu en í dag. Það er ansi margt sem er í ólagi hjá okkur. Reglufesta, seinustu daga hafa komið dæmi um það hversu fyrirtækjum finnst allt í lagi að hafa ótryggða bílaleigubíla, ótryggða flutningabíla og rútur, fyrirtæki sem borgar ekki skatta og þykir sjálfsagt og eðlilegt að hafa fólk á svörtu. Við þurfum betra samfélag. Ekki þetta þegar smámál verða að risamálum eins og Hofsvallagötuævintýrið. Ekki flugvallarmálið þegar menn neita að ræða það sem skiptir máli. Hvað gerist í kringum okkur næstu hundrað árin hækkar sjór fer allt á kafa, þurfum við nokkuð að ræða það? Skipta umhverfismál einhverju?
Við erum svo ginkeypt fyrir rugli. Og stjórnmálamenn spila okkur upp í það. Þeir sem vilja halda loforð og samninga eru fífl eins og dæmin sanna. Í seinustu ríkisstjórn þá var gerður samningur um ESB viðræður og meiri hluti VG hélt það sem var skrifað undir, hinn hlutinn reyndi að skemma tefja og eyðileggja. Þeir fá ekki á baukinn fyri það. Þeim er hampað af stærsta dagblaði landsins. Það eru þeir sem efndu heit sín sem eru látnir gjalda fyrir það. Svona erum við, svo tekur við ný stjórn og strax á að svíkja það sem var lofað. xD gleymir öllu hinir eru í vanda fyrir loforð. Niðurstaðan verður líklega gleymska þjóðarinnar. Eða ný hrunbylgja. Við verðum að taka okkur á við gerum það ekki með eylandsmennsku af verstu tegund.
Æ, mér er illt.
Og það haustar