miðvikudagur, 3. júlí 2013

Ban Ki-moon dansar ekki við Snowden

Þeir sem lásu ekki pistil minn í gær um Snowden ættu að gera það núna.  Það sannaðist hjá mér afstaða valdsmanna þegar Obama og Heimsveldi eiga í hlut.  Bugta og beygja. Bugta og beygja.  

Flétta dagsins er ótrúleg.  Forseti sjálfstæðs ríkis, Bólivíu,  verður að hlýta því að lenda á Vín og láta leita í flugvél sinni hátt og lágt.   Evrópusambandið hneigir sig fyrir skilaboðum Obamas, ríkin neita að leyfa flugvélinni að fljúga í gegnum lofthelgi þeirra. .   Morales forseti verður að horfa á í forundran.  Snowden gæti verið í vélinni hans. 

Á sama degi mætir Ban Ki-moon á fundi með utanríkisnefnd Alþingis þar sem hann er nú aldeilis að taka upp hanskann fyrir Snowden sem hefur vogað sér að fletta ofanaf stjorfelldum njósnum Bandaríkjanna um þegna sína og aðrar þjóðir.   Nei, aðaritari Sameinuðu þjóðanna tekur að sjálfsögðu afstöðu með Heimsveldinu og leppum þess.  


Í fréttinni kemur einnig fram að Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Pírata, hafi beðið Ban Ki-moon skýringar á orðum hans um uppljóstrarann. „Aukinn aðgangur getur verið til heilla fyrir almenning, en stundum skapast stærri vandamál vegna misnotkunar einstaklinga,“ var svar Ban Ki-moon.
Birgitta telur gagnrýni aðalritarans ekki réttmæta: „Ég tel rangt af aðalritara Sameinuðu þjóðanna að áfellast Snowden sérstaklega frammi fyrir utanríkismálanefnd Alþingis. Hann virtist ekki hafa neinar áhyggjur af innrás ríkisstjórn í einkalíf fólks um allan heim, hann hafði bara áhyggjur af því hvernig uppljóstrarar misnota kerfið,“ sagði Birgitta í samtali við The Guardian. (dv.is)  

Mbl.is segir svo frá: 


Ummælin ollu undrun fundarmanna, en þau féllu einungis nokkrum klukkustundum eftir að Snowden sótti um hæli á Íslandi. Birgitta Jónsdóttir óskaði eftir skýringum aðalritarans á ummælunum, sem sagði að „aðgangur að upplýsingum gæti verið af hinu góða í stóra samhenginu, en stundum valdi það meiri vandræðum þegar einstaklingar misnoti þær“.
Birgitta lýsti yfir undrun sinni og áhyggjum af afstöðu aðalritarans. „Mér þykir rangt að aðalritari SÞ fordæmi Snowden persónulega frammi fyrir utanríkisnefnd Alþingis. Hann virtist engar áhyggjur hafa af innrásum stjórnvalda inn í einkalíf einstaklinga, heldur einungis af því hvernig uppljóstrarar misnoti kerfið,“ sagði Birgitta.
Að vísu er það svo að fundir með utanríkismálanefnd eru bundnir trúnaði en ég veit ekki hvort það eig við um gestafund sem þennan.  Og fréttin kemur frá Guardian sem allir vita að hefur góð sambönd við Wikileaks á Íslandi og Birgittu Jónsdóttur.  Sem auðvitað láta svona upplýsingar sem eru heimsfrétt af hendi . 



Já lesandi góður.  Það er ýmislegt sem skeður í heiminum í dag, Forseti Egyptalands rekinn frá völdum, Forseti Bólivíu fær ekki að fara leiðar sinnar um Evrópu og Aðalritari Sameinuð þjóðanna er enn einu sinni handbendi Bandaríkjanna. Þetta hefur talsmaður aðalritarans að segja:  
The spokesman's office of the UN secretary general in New York declined to confirm or deny Ban's comments to the Icelandic committee on grounds that it had been a private meeting.


Að bugta og beygja.  Hvar voru íslenskir fjölmiðlar í dag, það er spurningin???? Þeir eru allir með fréttina úr Guardian..... 

 

Snowden: Leiksýning heimsveldanna

Það er dýrkeypt að koma við kaunin á Valdamönnum þessa heims, sérstaklega þeim sem stjórna Heimsveldum.  Það hefur Edward Snowden fengið að reyna seinustu vikurnar.   Þeir sem sýna fram á hræsni og yfirdrepsskap stórmenna eins og Obama eða Pútín eiga ekki sjö dagana sæla. Það þekkjum við úr fréttum heimsins.  Líklega eiga Obama og Pútín sömu hagsmuna að gæta, að við eigum  ekki að vita um vinnubrögð undirsáta þeirra hvort sem um er að ræða upplýsingasöfnun sem er í hróplegu ósamræmi við allt sem þeir boða eða fangelsisdóma yfir fólki sem reynir að koma skoðunum sínum á framfæri í lokuðum alræðisríkjum.   

Leiksýning Pútíns á flugvellinum er senn á enda.  Snowden ber bónleiður að ýmsum dyrum.  Einu dyrnar sem virðast ætlast að opnast fyrir honum eru fangelsisdyr Frelsisríkisins í vestri þar sem við sjáum hvernig Bradley Manning er meðhöndlaður.   Jafnvel Evrópusambandið sem hefur fengið fréttir um gegndarlausar njósnir Bandaríkjamanna á valdastofnunum þess lyftir ekki lillaputta.  Enginn má styggja Heimsveldið í vestri hvernig sem það hegðar sér.  Það er um að gera að bugta sig og beygja.  

Það er varla við því að búast að íslenska ríkisstjórnin sýni þá djörfung að leika sama leik og Davíð Oddsson gerði um árið.  Að taka á móti manni úr dýragildru sem getur ekki hreyft sig.  Varla skorar Forseti vor á forsætisráðherrann að sýna einstakt hugrekki og koma því til leiðar að karlinn sem hefur opnað Pandórubox siðlausra njósna Heimsveldisins fái ríkisfang hér á landi. Við höfum heyrt og séð aðgerðir Kínverja, nú eru það vinir okkar í vestrinu. Boðberar frelsis og lýðræðis.

Ó nei, við erum of litlir of aumir, enginn í ríkisstjórninni man orð Jóns Sigurðssonar Vér mótmælum allir þegar yfirgangsherrar vilja valta yfir lög og reglur.   

Ó nei, þjóð mín góð.  Þannig er lífið á Ísalandi árið 2013. Að bugta og beygja. 

 

mánudagur, 1. júlí 2013

Árni Snævarr og fjórða valdið: Guð blessi Ísland

Ég dreg stundum að lesa það sem maður á að lesa sem skyldulesningu.  Þannig  var með grein Árna Snævars í nýjasta tölublaði Tímarits Máls og Menningar um fjölmiðlalíf og starf hans á þeim vettvangi sem endaði með sparki í afturendann  á honum út úr húsakynnum Stöðvar 2.  Þetta er sorgleg lesning, að fólk skuli leggja þetta á sig sem fólk verður að gera til að stunda vinnu i fjölmiðlum. Starfi sem þeir myndu vilja stunda alla ævi, atvinnu sem þeir elska.  Þar sem eigendur og handhafar valdsins telja sig geta hvenær sem er sýnt vald sitt, deilt og drottnað, það er sama hvort þeir heita Jón Ólafsson, Jón Ásgeir Jóhannesson, Páll Magnússon, Sigurður G. Guðjónsson eða Karl Garðarsson. Það er sorglegt að sjá það sem á að vera Fjórða valdið í okkar samfélagi misþyrmt og misnotað.   Fjölmiðlarnir.  Þar sem jafnvel talsmenn þessa valds lúffa og láta misnota sig og bera jafnvel úr býtum sæti á Alþingi. 

Það var svo merkilegt að lesa morguninn eftir hugsanir Guðmundar Andra Thorssonar um áróðursherferðina gegn eina fjölmiðli landsins þar sem atvinnumenn geta stundað vinnu sína í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til fjölmiðlafólks á heiðarlegum fjölmiðlum.  Þar á ég við rægingarherferðina sem Davíð Oddsson, Morgunblaðið og íhaldsfólk á Íslandi stunda gegn RÚV.  Fjölmiðlastofnun allra landsmanna.  Tilgangurinn er sá að gera atvinnufólk hrætt að stunda vinnu sína sem skyldi.   Þeir eiga að liggja hundflatir fyrir valdamönnum, hvort sem þeir heita Sigmundur Davíð, sem mér skyldist að hefði skrifað mikinn langhund í Morgunblaðinu í seinustu viku um ofsóknir fréttamanna á hendur sér fyrstu vikur hans á valdastóli, eða Ólafur Ragnar Grímsson, sem alltaf hefur verið klókur að nota aðra til að þjóna hagsmunum sínum og duttlungum. 

Það er auðséð að það á að þagga raddir þeirra sem reyna að segja sannleikann og fréttir sem þjóna ekki ríkjandi valdamönnum.  Þessi rógsherferð er upprunnin í Hádegismóum eins og margt seinustu árin eins og Guðmundur Árni bendir réttilega á.  Við eigum ekki að fá fréttir af eigendum Íslands, útgerðarmönnum, bankastýrendum og Lífeyrissjóðsgreifum.  Við eigum að vera þrælar sem beygja sig og bukta fyrir nýlendurherrunum sem geta ríkt yfir okkur og sagt okkur hvað á að gera og hvenær.   

Svo spurningin er ætlum við að lúta í gras eins og Bjarni Fel sagði eða að reyna að rísa upp og segja:  Nú er komið nóg!!! Guð blessi Ísland.


  




Fótbolti: Þegar heimurinn umhverfist í ballett

Mikið var gaman að sjá Brassana dansa yfir Spánverjana í kvöld.  Það er undirfurðulegt þegar boltinn umhverfist í ballett og list.  Allt í einu verður nýr heimur til fyrir augum okkar. Nýjar stjörnur sem glitra, Meyamar og varnarmaðurinn Louis, markmaðurinn Julio Cesar.  Evrópubúarnir áttu aldrei möguleika.  Krafturinn og leiknin í andstæðingunum var ótrúleg.   

Ég nenni ekki svo oft að horfa á boltann nú orðið.  En í kvöld var það þess virði.  

laugardagur, 29. júní 2013

Dýr orð Sigmundar Davíðs.

Dýr orð, eða hvað þetta sagði Sigmundur Davíð í gær: 


Sigmundur Davíð segir að með þessu sé hafin formleg vinna við það sem stefnir í að vera mestu úrbætur í þágu skuldsettra heimila nokkurs staðar í heiminum eftir að efnahagskrísan hófst árið 2007. Tillögurnar hafa verið nokkuð gagnrýndar af OECD og stjórnarandstöðunni. Gagnrýni þeirra síðarnefndu kemur Sigmundi Davíð ekki á óvart.
„Hvað hins vegar OECD varðar, og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og allar þessar stofnanir þá hef ég ekki miklar áhyggjur af því hvað hinum og þessum skammstöfunum finnst um þetta frumvarp og raunar kæmi það mér mjög á óvart að slíkar stofnanir væru opnar fyrir svona róttækum aðgerðum." 
Er þetta ekki oflæti eru menn ekki komnir framúr sjálfum sér ..... þarf að gera úrbætur hjá þeim sem ekki þarfnast þeirra og sækja ekki um slíka hjálp?????   Er ekki nær að hjálpa þeim sem þurfa raunverulega á henni að halda?    
Ég er einn af þeim sem hef vonað að Sigmundi og ríkisstjórn takist að hjálpa þeim sem eru í slæmum málum.  En ég ætlast ekki til mikilmennskubrjálæðis og ofsóknaræðis um leið.  Við þurfum ekki að slá heimsmet, við þurfum bara að vera lítillát og hógvær og hjálpa þeim sem þarfnast í þjóðfélagi jafnaðar og samhjálpar.   
Þannig er mín heimssýn....

föstudagur, 28. júní 2013

Forseti: Þjóð í vanda

Sú þjóð er í vanda þegar hún hefur kosið yfir sig Forseta sem kann ekki mun á réttu og röngu. Munum þessi ummæli við Setningu Alþingis nú í sumar: 

Hann sagðist sannfærður um að þrátt fyrir vinsamlegar yfirlýsingar ýmissa forráðamanna Evrópusambandsins hefðu þeir ekki raunverulegan áhuga á að semja við Íslendinga. Hann vísaði til þess að Norðmenn hefðu tvívegis hafnað ESB-aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu og sagði forsvarsmenn sambandsins ekki vilja eiga þriðju höfnunina yfir höfði sér.



Nú segir Forseti Íslands.



„Ég sagði í þingsetningarræðunni að það væri margt sem að benti til þess að og það væri mín ályktun eftir viðræður við marga og það hefur nú styrkst í þessari heimsókn að af ýmsum ástæðum sem að ég rakti í ræðu minni meðal annars þeirri að ekki væri unnt að ljúka viðræðum nema að ljóst væri að verulegur stuðningur væri meðal Íslendinga fyrir aðild. Því það er á vissan hátt óábyrgt af okkur sem þjóð að fara í alvöru, að fara í viðræður við alvörusamband eins og Evrópusambandið svona í einhverjum leikaraskap bara til þess að kanna nú hvað við kannski fengjum út úr því. Við verðum að passa okkar orðspor sem þjóð og sem lýðveldi að þegar við sækjum um inngöngu í aðildarsamband eins og Evrópu þá meinum við það í alvöru. Og það var það sem kanslarinn sagði í gær að ef að þjóðir meintu það ekki í alvöru þá ætti ekki að vera að eyða tímanum.

Er þetta ekki að fara í kringum talað orð?  
Erum við ekki í vanda?  

fimmtudagur, 27. júní 2013

Forsetinn: Fjölmiðlafulltúi ríkisstjórnarinnar

Öðruvísi mér áður brá.  Okkar ágæti forseti búinn að finna stað sinn.   Sem talsmaður og fjölmiðlafulltrúi ríkisstjórnarinnar.  Og hann er ekki sem verstur. Betri en margur atvinnumaðurinn!!!! En hvað þeir hugsa ráðamenn Þýzkaland það er annað mál.  Enda finnst Angelu þess ekki virði að mæta á blaðamannafundi með Forseta vorum.  Þeir skilja vafalaust ekki hugsunarhátt ríkisstjórnar okkar og fjölmiðlafulltrúans.   Sem getur ekki ákveðið úr því að það liggur svo skýrt fyrir að Íslendingar vilji aldrei ganga í ESB, að hætta þá bara þessum blessuðum umræðum í eitt skipti fyrir öll og draga umsóknina til baka.  En ákveður í staðinn að fresta viðræðum meðan Gunnar Bragi Sveinsson er utanríkisráðherra.  Sem er sérstaklega göfugt markmið.

Meðan stjórnin álítur að hún geti fengið allt í gegnum ESB samninga styrki og úthlutanir en láti ekkert í staðinn.  En oftast gengur lífið út á kaup kaups.  Mikið fæst ekki fyrir lítið. Og við getum kennt öðrum ýmislegt á okkar sviðum, fengið í staðinn ansi margt.  Þannig er lífið.