miðvikudagur, 17. maí 2017

Trump, Sigmundur og Ólafur

Enn kórónar Forseti Heimsveldisins stuttan feril sinn. Enn gapir maður yfir barnaskap hans og meðvirkni samstarfsfólks hans sem virðist óendanleg. Minnir einna helst á atburði á okkar landi í fyrra. Viðbrögð margra við glæpum forsætisráðherrahjónanna. En auðvitað eru gjörðir Forsetans svo alvarlegri þar sem um er að ræða mesti valdamaður heimsins og á að vera sverð okkar og skjöldur. Þetta var nú kaldhæðni!

"I hope you can let this go,” the president told Mr. Comey, according to the memo.
“I hope you can see your way clear to letting this go, to letting Flynn go,” Mr. Trump told Mr. Comey, according to the memo. “He is a good guy. I hope you can let this go.”
Ég vona að þú sleppir þessu sagði forsetinn. Hann er svo góður gæi. Það fer hrollur um mann. Eins og fór um íslensku þjóðina fyrir rúmu ári síðan. Okkar ráðherra hafði ekkert gert rangt. Svo margir aðrir gerðu það sama.  Enn eru fjölmargir sem vilja fá hann til baka í formannsstólinn. Spilling hefur ekki mikið vægi  hjá okkur. Núverandi Forsætisráðherra hlær að eigin subbulegu vafningum.

Svo er holdgervingi spillingarinnar, Ólafi Ólafssyni, boðið í heiðursheimsókn á Alþingi. Einn dýpsti drullupollur íslenska lýðveldisins. 

laugardagur, 13. maí 2017

Forsætisráðherrann gjörspillti: Ekki hagsmunir

Pólitískir andstæðingar sem vilja koma á mig höggi segir forsætiráðherran gjörspillti og hnepptir að sér jakkanum ... og glottir. Ef einhver er holdgervingur spillingar þá er það Bjarni Ben. Að svokölluð siðmenntuð þjóð hafi kosið þennan mann æðsta foringja þjóðarinnar....  það er mikið að. Hann er auðvitað ekki í viðskiptum, meðan hann dreifir milljörðum til vina og vandamanna. Það eru ekki hagsmunir.


Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, sem er gestur Morgunvaktarinnar á Rás eitt, var spurður hvort honum þyki óþægilegt að vera kallaður Engeyingur og ríkisstjórnin sé einnig kölluð Engeyjarstjórn Einkum í ljósi þess að Benedikt Jóhannesson er Engeyingu og frændi Bjarna.
„Ég er orðinn vanur þessu og það þurfti ekki Benedikt Jóhannesson til. Þetta hefur verið svona lengi. Ég tek eftir hverjir gera þetta, það eru pólitískir andstæðingar sem vilja koma á mig höggi,“ sagði Bjarni.
Þá var hann spurður um fyrirferð fjölskyldunnar í viðskiptalífinu og umræður sem verða þess vegna. Bjarni sagði sjálfsagt að það sé rætt. „Ég tók ákvörðun fyrir mörgum árum að vera ekki í viðskiptum og ég á engra hagsmuna að gæta.“

fimmtudagur, 11. maí 2017

Fyrir hverja eru kerfin...

Þau eru merkileg okkar frábæru kerfi, sem við breytum öðru hverju, engum til hagsbóta nema klíkuvinum,flokknum og ættingjum.
Þegar við höfum forsætisráðherra sem hvað eftir annað hefur lýst yfir fyrirlitningu á vitrænni umræðu um heilbrigðismál, allt er í góðu lagi svo við þurfum bara að halda áfram að gera of lítið eins og núna. 
„Við höfum aldrei sett meiri fjármuni í Landspítalann. Hvað er nóg? Það hefur aldrei verið sett meira í kaup tækja. Við höfum stóraukið framlög til tækjakaupa. Það er rétt að við þurfum að stefna að því að gera betur. Við þurfum líka að gæta að því að ofreisa ekki áform okkar þannig þau hrynji aftur til grunna. Allt sem við erum að gera er afrakstur af verðmætasköpun sem á sér stað,“ sagði hann eitt sinn.

Við höfum heilbrigðisráðherra sem ræður við fátt. Sjúkratryggingar ráða því sem þær vilja ráða. Einkavæðingar andlitin koma undan grímunni. 
REGLUGERÐ um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu, er glæsilegt plagg ef ekki guðdómlegt í flækjuvísindum.  Nýr formaður stjórnar Sjúkratrygginga fær nóg að gera í samskiptum við forstjórann alræmda. 

Greiðslur sjúkratryggðs og afsláttarstofn.
3. gr.
Hámarksgreiðsla sjúkratryggðra.
Hámarksgreiðsla sjúkratryggðs almennt í almanaksmánuði fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari, er 24.600 kr. Fari heildarkostnaður sjúkratryggðs í almanaksmánuði yfir þá fjár­hæð greiða sjúkratryggingar, þ.e. Sjúkratryggingar Íslands eða viðkomandi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er, sbr. þó 4. gr.
Hámarksgreiðsla aldraðra, öryrkja, barna og barna með umönnunarmat í almanaksmánuði fyrir heil­brigðis­þjónustu samkvæmt reglugerð þessari, er 16.400 kr. Fari heildarkostnaður í almanaks­mánuði yfir þá fjárhæð greiða sjúkratryggingar, þ.e. Sjúkratryggingar Íslands eða viðkom­andi heilbrigðisstofnun, það sem umfram er, sbr. þó 4. gr.
Börn með sama fjölskyldunúmer samkvæmt skilgreiningu Þjóðskrár Íslands skulu teljast einn ein­staklingur. Hámarksgreiðsla barna í sömu fjölskyldu, almennt í alman­aks­mánuði fyrir heilbrigðis­þjónustu samkvæmt reglugerð þessari, er 16.400 kr. Fari heildarkostnaður í almanaks­mánuði yfir þá fjárhæð greiða Sjúkratryggingar Íslands eða viðkomandi heilbrigðisstofnun það sem umfram er, sbr. þó 4. gr.
Til að sjúkratryggðir njóti réttinda samkvæmt þessari grein ber veitanda heilbrigðisþjónustu að skila reikningsupplýsingum til Sjúkratrygginga Íslands á því formi sem stofnunin ákveður.
4. gr.
Afsláttarstofn og greiðslur sjúkratryggðs fyrir heilbrigðisþjónustu.
Greiðslur sjúkratryggðs fyrir heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari mynda afsláttarstofn. Afsláttarstofn er nýttur við ákvörðun á greiðslum sjúkratryggðs við kaup á heilbrigðisþjónustu. Afsláttarstofn verður aldrei hærri en hámarksgreiðsla sjúkratryggðs í almanaksmánuði, sbr. 3. gr. Afsláttarstofn flyst á milli mánaða að frádregnum 1/6 hluta af hámarksgreiðslu um hver mán­aða­mót, óháð greiðslum sjúkratryggðs.
Við ákvörðun greiðsluþátttöku sjúkratryggðs vegna heilbrigðisþjónustu samkvæmt reglugerð þessari skal leggja saman afsláttarstofn og greiðslur sjúkratryggðs við kaup á heilbrigðisþjónustu. Séu samanlagðar greiðslur lægri en hámarksgreiðsla, sbr. 3. gr., greiðir sjúkratryggður kostnaðinn allt að hámarksgreiðslu. Kostnaður umfram hámarksgreiðslu sjúkratryggðs greiðist af Sjúkra­trygg­ingum Íslands, ef um er að ræða þjónustu sem þær taka þátt í að greiða, annars af við­kom­andi heilbrigðisstofnun.

Menntamálaráðherrann er svo sár að það skuli fréttast að leikflétta hans um nýja sameiningu rati í fjölmiðla! Hann læðir skólastjórnendum með í undirbúningsnefnd sem er bundin trúnaði og annar rektorinn kemur sér burt sækir um stöðu konrektors í MH! Hann vill ekki vera viðstaddur þetta niðurbrot Mennta verðmæta. Þau eru mörg ólánstíðindin þessa dagana.



fimmtudagur, 4. maí 2017

Álfheimar: Kaupmaðurinn á Horninu.

Þegar ég var ungur, barn og unglingur bjó ég í Bústaðahverfinu. Það var eitt af þessum úthverfum sem spruttu upp úr Stríðinu. Vogar, Laugaráshverfi, Heimar, Háaleiti, Smáíbúðahverfi og Sund. Fólk sem lifir í dag og er fætt seint á öldinni á erfitt með með að ímynda sér þetta umhverfi og heim. Kartöflugarðar í Kringlumýrinni, ekkert Breiðholt, mikil fátækt, heilmikil misskipting, gríðarlegur barna fjöldi.

Engir stórmarkaðir, verzlanakjarnar....en í mörgum hverfum 4-5 verslani sem voru miðstöð hverfanna. Þannig var það í Bústaðahverfinu,.Kaupmaðurinn á horninu (Ólabúð) þar var ég sendisveinn eitt sumar, mjólkurbúð,fiskbúð, kjötbúð, lítil bóka og gjafabúð, og vefnaðarvarabúð. Upp á lofti var svo útibú Bæjarbókasafnsins (ómetanleg stofnun fyrir okkur krakkana) og efst uppi Skátastarf.

Mér verður hugsað til þessa heims bernskunnar í mínu hverfi sem ég flutti í eftir 15 ára dvöl á landsbyggðinni,Álfheimum. Því þrátt fyrir aragrúa verzlana þá er ein verslunin að mestu leyti horfin, það er kaupmaðurinn á horninu. Ég kynntist þessum matvöruverslunum þetta sumar sem sendisveinn og sem barn og unglingur sem fór út í búð  fyrir mömmu (pabbi var oftast á sjó eða úti á landi í vinnu).

En nú er öldin  önnur. Og þó .... verzlanir efst í Álfheimum hafa átt erfitt uppdráttar seinasta áratuginn, en nú er komið fínt bakarí og kaffihús Passion,eitt allra besta bakarí borgarinnar. Ný Ísbúð, Huppa,orðin félagsmiðstöð hverfisins. Þarna er hárgreiðsla, núðluveitingastaður, grafískir hönnuðir, snyrtistofa. Og seinast en ekki síst, ný glæsileg matvörubúð, ótrúlegt vöruúrval á litlu svæði. Víetnömsk fjölskylda rekur og á búðina. Allt það nauðsynlega í boði og auk þess ýmislegt austrænt sem maður mætti kunna betri skil á.  Og verðið yfirleitt sanngjarnt, muna ódýrara en ýmsar okurbúllur sem ég nefni ekki með nafni.

 Ég hef ekki alveg hætt að fara í Bónus en ferðunum hefur fækkað. Þjónustan og persónuleg samskipti eru meiri og betri efst í Álfheimunum. Svo býður þetta hverfi upp á allan Laugardalinn eitt stærsta útivistarsvæði borgarinnar. Gönguleiðir, Húsdýragarðurinn, Flóra, veitinga og kaffihúsið, það er búið að opna það núna. Opið 9-18 til að byrja með.


þriðjudagur, 2. maí 2017

Vanþakklæti þjóðarinnar

Líklega er vanþakklæti Íslendinga með endemum, eða hvað?  Þeir kunna ekki að meta frábæra ríkisstjórn í brakandi góðæri!  Nú kemur Bjarni og jarmar og krunkar um réttlætið sem eigi eftir að koma. Þegar fólkið í landinu sjái að sér.  Allt sé í blóma og brátt muni sumarið heilsa með samhentri og fjörugri þjóð!

Hvernig stendur á því að ríkisstjórnarflokkarnir 3 eru með 33,4 prósenta fylgi og ríkisstjórin sjálf með 31,4 prósentu stuðning, er ekki kominn tími til að þeir fari í djúpa naflaskoðun og spyrji hvað er að?  Sendi kafara lengst niður í naflann sem komi upp með sannleikann. Hvort þetta sé eðlilegt? Er ekki kominn tími til að horfa í spegil, horfast í augu við sjálf sig. Horfast í augu við þjóðina?

Er í lagi með ákvarðanatöku í Heilbrigðismálum, Velferðarmálum, Umhverfismálum, Fiskveiðimálum, Atvinnumálum. Framtíðarstefnu í stóru málunum um Gróðurhúsaáhrif og Jöklabráðnun og hækkun Úthafanna. Stöðu okkar í heiminum?


 Er í lagi að aðaláhersla sé að setja áætlanir um gjafir til vina og vandamanna Íhaldsins á auðæfum landsins. Meðan Viðreisn og Björt Framtíð sem eru að hverfa af yfirborði jarðar, fá að dingla í snörunni, meðan engir fjármunir eru ætlaðir til málanna  sem fólkið í landinu setur efst á blað. Heilbrigði, Húsnæði, Félagskerfi, Vegaframkvæmdir,Menntakerfi. Það er eins og Óttarr og Benedikt hafi útrýmingarhvöt, vilji þurrkast út á mettíma. Fái nokkrar línur í sögunni neðanmáls. Kannski eru þeir bara á leiðinni inn í xD?

 Er ekki kominn tími til að endurskoða vegferðina, segja:  Aha, gerðum við þetta, eða efna til nýrra kosninga svo við fáum starfhæfa stjórn.  Þetta er svo grátlega heimskulegt. Landið og þjóðin hafa upp á svo margt að bjóða.

                                 

Sam­kvæmt könn­un MMR sem fram fór dag­ana 11-26. apríl 2017 mæl­ist Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn með mest fylgi ís­lenskra flokka. Litl­ar breyt­ing­ar urðu milli mæl­inga á fylgi stærstu flokk­anna, Sjálf­stæðis­flokks og Vinstri grænna. Fylgi Sjálf­stæðis­flokks mæld­ist nú 25,2% en það er 0,2 pró­sentu­stiga lækk­un frá síðustu könn­un sem lauk 13. mars 2017. Vinstri græn­ir mæld­ust með næst mest fylgi eða 23,4% og er það ei­lítið lægra fylgi en í síðustu könn­un þegar fylgið mæld­ist 23,5%. Fylgi Pírata mæld­ist nú 12,8% og er það lækk­un um tæp­lega eitt pró­sentu­stig frá síðustu mæl­ingu.

Fylgi Fram­sókn­ar­flokks mæld­ist nú 11,1% og mæld­ist 11,4% í síðustu könn­un.
Fylgi Sam­fylk­ing­ar­inn­ar mæld­ist nú 10,6% og mæld­ist 8,8% í síðustu könn­un.
Fylgi Viðreisn­ar mæld­ist nú 5,0% og mæld­ist 5,5% í síðustu könn­un.
Fylgi Flokks fólks­ins mæld­ist nú 3,2% og mæld­ist 3,7% í síðustu könn­un.
Fylgi Bjartr­ar framtíðar mæld­ist nú 3,2% og mæld­ist 5,0% í síðustu könn­un.
Fylgi annarra flokka mæld­ist 5,4% sam­an­lagt.


Stuðning­ur við rík­is­stjórn­ina lækkaði milli mæl­inga. Alls kváðust 31,4% styðja rík­is­stjórn­ina nú sam­an­borið við 34,5% í síðustu könn­un
mbl.is











föstudagur, 28. apríl 2017

Háþrýstingur í heilbrigðiskerfinu: Sérfræðilæknar trumpast!

Það er háþrýstingur í heilbrigðiskerfinu um þessar mundir.  Yfirmenn Landsspítala og Landlæknir reyna að standa vörð um almenna og gjaldfrjálsa heilsugæslu, að mestu leyti.  Íhaldslæknastéttin með sérfræðilækna í fararbroddi æsir sig og vill fá góða þjónustu hjá Ríkisstjórninni.  Þeirra hugmyndir eru auðvitað að fá einkavæðingu á flestum sviðum.   Einn sérfræðilæknir sendir Landlækni aldeilis tóninn í Morgunblaðinu í gær.  Hámarkið er að Landlæknir  sendi Ríkisstjórn tóninn.  Að gagnrýna hið háa vald með snillinginn Óttarr Proppé í fararbroddi.  Þar sem allt sem hugsast getur er í biðstöðu. 

Krabbameinssjúklingar fá ekki lyf,  Sjúklingar þurfa að bíða eftir aðgerð endalaust,  undirritaður þurfti 4 ár til að fá hnjáliðaaðgerð á báðum fótum, ekki er þetta landlækni að kenna, heldur endalausu fjársvelti Ríkisspítalanna og ekki batnar ástandið við að láta Klínikina fá fjármunina sem eru til úthlutunar, þótt að ættingjar ráðherranna og velvildarmenn Sjálfstæðisflokksins eigi hlut að máli. 

Maður heyrir á tali fólks að nú er nóg komið.  Ætli þurfi ekki  risamótmæli í haust til að sýna vilja fólksins í landinu?  Það er komið nóg.  Hálaunafólk og útgerðaaðall vill stjórna, lægri skatta, nýja stjórn í Seðlabanka. .  Þægt fólk í áhrifastöðum í heilbrigðiskerfinu, það er lóðið. Þá verður allt gott.  En, lesendur góðir, er þetta ekki eitthvað sem við viljum stoppa?    


Vant­ar 100 hjúkr­un­ar­fræðinga

 Sjúk­ling­ar hafa ekki efni á að bíða

Hvað er hæft í fullyrðingum landlæknis

Vant­ar 10 millj­arða í rekst­ur­inn

 

þriðjudagur, 25. apríl 2017

Frakkland /Ísland: Spurningar og svör.

Úrslitin í Frakklandi koma svo sem ekki á óvart. Ef maður hefur fylgst með stjórnmálum í heiminum upp á síðkastið. Vantraustið og fyrirlitning á hefðbundnum stjórnmálaöflum er allsráðandi. Í staðinn eiga Öfgaflokkar /Einstaklingar aðgang að atkvæðum fólks sem aldrei fyrr. Fleiri flokkar fleiri framboð, meira lýðræði? Það er spurningin.

Ýmislegt er sameiginlegt með seinustu kosningum hjá okkur og þeim frönsku. Tveir frambjóðendur LePen og Fillon hafa skugga spillingar hangandi yfir sér, en eru kosnir af 40% kjósenda. Hverjum er ekki sama? Myndum við gera það sama í sömu aðstöðu? Bara kjósa þá. Ónei, ekki ég. Ansi er maður orðinn lúinn.  Það á við undirritaðan Eins og mörgum öðrum, finnst mér spillingin umhverfis okkur vera yfirþyrmandi og valdamönnum   spillingar finnst ekki ástæða  til að fela voðaverk sín. Ættarspilling og klíkuskapur ráða ríkjum. Flestir bugta sig og beygja. 

En ..... Hvað getum við gert, kosið fasista og pópúlista? Dansað við Trump og úlfa. Blásið í Trumpeta? Það er eins og allar leiðir séu lokaðar. Orð eins og Friður, Réttlæti, Fegurð eða Manngæska eru gleymd. Græðgin glottir framan í okkur.

Ég er þreyttur og nenni varla að skrifa.  En ....  ætli maður rísi ekki upp aftur? Spurningarnar eru margar og um leið eru svörin fjölmörg. Mér var hugsað um þetta þegar ég horfði og hlustaði á Hin tvö líf Verónikku, meistaraverk Pólverjans Kieslowskí.  https://youtu.be/XlcWrglVZEA





Official first round result

With 106 of 107 departements counted | At 04:49 CEST
Macron 23.75%
Le Pen 21.53%
Fillon 19.91%
Mélenchon 19.64%
Hamon 6.35%
Dupont-Aignan 4.75%
Lassalle 1.22%
Poutou 1.1%
Asselineau 0.92%
Arthaud 0.65%
Cheminade 0.18%

The top two candidates go into a run-off election in two weeks' time, on Sunday 7 May.