Íslensk stjórnmál eru farsi. Eru sjónvarpsþáttur. Eru bananahýði. Maður grípur andann á lofti, skellihlæjum og við dettum kylliflöt á hýðinu. Gosaaugnaráð Bjarna þegar hann er í vondum málum. Aulagrettur Sigmundar Davíðs í kerfisbreytingunum. Allt verður undursamlega fáránlegt. Hvað á að gera við karla, sem eru áhættufíklar og siðblindir? En vilja vera með í tíkinni þessu einu og sönnu. PÓLITÍK!
Þeir virðast hafa fleira sameiginlegt en mann óraði fyrir. Losa sig við eitthvað á seinustu stundu. Peninga, bréf, taka áhættu sem enginn á að gera, ef hann vill vera í stjórnmálum eða verða valdsmaður. Þeir geta hrifið sakleysingja með sér, í nafni sjarma (sem ég á erfitt með að skilja), auðs, valda, flokks, ættar. Þeir sjá það ekki sem allir hafa séð fyrir löngu. Þeirra tími er á enda. Þeir munu aldrei koma aftur.
Þetta eru karlar sem hafa aldrei þroskast, aldrei komist undan verndarvæng pabba. Hvenær horfast þeir í augu við sjálfa sig? Líta í spegilinn og spyrja: Hver ert þú? Hvað ert þú að gera?
Hvenær átta þeir sig á eyðileggjandi krafti sjálfs þeirra? Lífið býður upp á annað en endalausa valdafíkn. Þeirra tími er liðinn.