Nefnd lögð af, enn er Sjálfstæðisflokkurinn þjónn útgerðarmanna, allir aðrir flokkar í þessari nefnd vilja gjaldtöku sem miðist við tímabundin afnot. Eitt hefur verið notað gegn VG að þeir vilji ekkert gera í sjávarútvegsmálum. Ekki er það þarna. Allir sammála nema xD. Þetta er skýringin á baráttunni gegn stjórnarskrá!
Aðalatriði stefnu VG í Sjávarútvegi eru:
Aðalatriði stefnu VG í Sjávarútvegi eru:
Sjávarútvegur
Meginmarkmiðið með sterkri sjávarútvegsstefnu er sjálfbær nýting fiskistofnanna, ábyrg umgengni um lífríki hafsins, samhengi í byggðaþróun og síðast en ekki síst að arðurinn af auðlindinni renni til þjóðarinnar. Fylgja þarf ráðgjöf vísindamanna við nýtingu fiskistofna. Eiga skal samstarf við nágrannaþjóðir á sviði rannsókna og nýtingar sjávarauðlinda. Auðlindagjald verði tekið af sjávarútvegsfyrirtækjum í hlutfalli við afkomu greinarinnar. Auka þarf strandveiðar og ráðstöfun heimilda til að verja byggðir landsins. Fiskeldi þarf að byggja upp með ítrustu varúð og í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði ekki ógnað.
Enn eitt dæmið um að koma Spillingar xD frá stjórnvelinum í nokkur kjörtímabil. Og Krafa til annarra flokka að mynda sterka og skilvirka stjórn.