þriðjudagur, 24. október 2017
sunnudagur, 22. október 2017
Spillingar- Bjarni : Holur hljómur í ósannsögli...
Spilling er orð. Orð sem of oft heyrist á skerinu okkar. En það er okkar að velja. Viljum við láta þá stjórna okkur sem eru áhættufíklar og hugsa bara eigin hag.
Við getum valið annað, þeir sem fara alltaf að ræða um vinstri stjórnina og gleyma hvað hafði gerst áður, þeir sem láta eins ogþeir viti ekki af misgjörðum og lygum formannsins. Allt fyrir flokkinn.
En kannski er mörgum alveg sama. Allir eru að gera það.
Seldi í Sjóði 9 sama dag
Forsætisráðherra
í Sjóði 9 sama dag

og neyðarlögin voru sett
Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður og núverandi forsætisráðherra, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana 2. til 6. október árið 2008. Þann 6. október miðlaði hann upplýsingum um störf FME til framkvæmdastjóra hjá Glitni. Ný gögn varpa ljósi á hlutabréfasölu Bjarna í Glitni í febrúar 2008 en hann fundaði með bankastjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrjaði að selja bréfin.
Bjarni: Lögbann á þessum tímapunkti út í hött
Segir holan hljóm í málflutningi KatrínarSeldi
FRÉTTIR
Forsætisráðherra
sagði
ítrekað ósatt
Umfjöllun Stundarinnar upp úr gögnum, í samstarfi við The Guardian og Reykjavik Media, sýndi fram á að Bjarni Benediktsson setti endurtekið fram rangar staðhæfingar í umræðu um eigin viðskiptagjörninga.
í Sjóði 9 sama dag
og neyðarlögin voru sett
Bjarni Benediktsson, þáverandi þingmaður og núverandi forsætisráðherra, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dagana 2. til 6. október árið 2008. Þann 6. október miðlaði hann upplýsingum um störf FME til framkvæmdastjóra hjá Glitni. Ný gögn varpa ljósi á hlutabréfasölu Bjarna í Glitni í febrúar 2008 en hann fundaði með bankastjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrjaði að selja bréfin.
föstudagur, 20. október 2017
XD: Einn á móti tímabundnum afnotum
Nefnd lögð af, enn er Sjálfstæðisflokkurinn þjónn útgerðarmanna, allir aðrir flokkar í þessari nefnd vilja gjaldtöku sem miðist við tímabundin afnot. Eitt hefur verið notað gegn VG að þeir vilji ekkert gera í sjávarútvegsmálum. Ekki er það þarna. Allir sammála nema xD. Þetta er skýringin á baráttunni gegn stjórnarskrá!
Aðalatriði stefnu VG í Sjávarútvegi eru:

Sjávarútvegur
Meginmarkmiðið með sterkri sjávarútvegsstefnu er sjálfbær nýting fiskistofnanna, ábyrg umgengni um lífríki hafsins, samhengi í byggðaþróun og síðast en ekki síst að arðurinn af auðlindinni renni til þjóðarinnar. Fylgja þarf ráðgjöf vísindamanna við nýtingu fiskistofna. Eiga skal samstarf við nágrannaþjóðir á sviði rannsókna og nýtingar sjávarauðlinda. Auðlindagjald verði tekið af sjávarútvegsfyrirtækjum í hlutfalli við afkomu greinarinnar. Auka þarf strandveiðar og ráðstöfun heimilda til að verja byggðir landsins. Fiskeldi þarf að byggja upp með ítrustu varúð og í samræmi við ráðgjöf vísindamanna þannig að líffræðilegri fjölbreytni verði ekki ógnað.
Enn eitt dæmið um að koma Spillingar xD frá stjórnvelinum í nokkur kjörtímabil. Og Krafa til annarra flokka að mynda sterka og skilvirka stjórn.
Sjálfstæðisflokkur einn á móti því að gjaldtakan miðist við tímabundin afnot
Þorsteinn Pálsson hefur skilað greinargerð um störf nefndar sem átti að finna lausn á gjaldtöku í sjávarútvegi. Starfi nefndarinnar hefur nú verið slitið.
þriðjudagur, 17. október 2017
Bjarni og Sigmundur: Valdafíklar
Íslensk stjórnmál eru farsi. Eru sjónvarpsþáttur. Eru bananahýði. Maður grípur andann á lofti, skellihlæjum og við dettum kylliflöt á hýðinu. Gosaaugnaráð Bjarna þegar hann er í vondum málum. Aulagrettur Sigmundar Davíðs í kerfisbreytingunum. Allt verður undursamlega fáránlegt. Hvað á að gera við karla, sem eru áhættufíklar og siðblindir? En vilja vera með í tíkinni þessu einu og sönnu. PÓLITÍK!
Þeir virðast hafa fleira sameiginlegt en mann óraði fyrir. Losa sig við eitthvað á seinustu stundu. Peninga, bréf, taka áhættu sem enginn á að gera, ef hann vill vera í stjórnmálum eða verða valdsmaður. Þeir geta hrifið sakleysingja með sér, í nafni sjarma (sem ég á erfitt með að skilja), auðs, valda, flokks, ættar. Þeir sjá það ekki sem allir hafa séð fyrir löngu. Þeirra tími er á enda. Þeir munu aldrei koma aftur.
Þetta eru karlar sem hafa aldrei þroskast, aldrei komist undan verndarvæng pabba. Hvenær horfast þeir í augu við sjálfa sig? Líta í spegilinn og spyrja: Hver ert þú? Hvað ert þú að gera?
Hvenær átta þeir sig á eyðileggjandi krafti sjálfs þeirra? Lífið býður upp á annað en endalausa valdafíkn. Þeirra tími er liðinn.

sunnudagur, 15. október 2017
Ásmundur: Kölski á fjósbitanum
Enn er Ásmundur í sviðsljósinu. Kölskinn á fjósbitanum. Ekkert stoppar hann, ekki stefna flokksins, ekki samþingmenn hans, ekki tekur formaðurinn hans til máls. Í húsi mínu eru margar vistarverur. Það er gott að hafa bersynduga með. Það er gott að velja Ásmund á listann frekar en besta og heiðarlegasta þingmann flokksins Unni Brá. Hann er Karl með stórum staf sem flýði frá Vestmannaeyjum hérna forðum þegar illa gekk, böðlaðist um í sveitarstjórnarmálum í Garði, fékk stuðning fólksins í flokknum, enda margir með svipaðar skoðanir og hann á Reykjanesinu og víða. Svo sakar ekkert að vera framámaður í Oddfellow. Eins og aðrir sem hafa komist langt sem Frímúrarar. Það virðist ekki hafa neitt í för með sér þó maður fari með ósannindi á opinberum vettvangi. Réttir fjölmiðlar taka það upp sem sannleika, þeir þekkingarsnauðu hrópa á torgum.
Bjarni Benediktsson þegir þunnu hljóði, flokkurinn er skakkur. Allt er hey í harðindum. Ásmundur og samferðafólk eiga skjól í Valhöll.Eða hvað?
PS. Bjarni svarar síðdegis,gerir Mikið úr starfi hans fólks ekki allt rétt: Sumir vilja að lögin verði ávallt túlkuð rúmt. Í því felist mesta mildin. Ég hef verið þeirrar skoðunar að við eigum að beita sambærilegri túlkun og samstarfsþjóðir okkar.
Þetta er ansi erfitt Þar sem samstarfsþjóðir okkar túlka hlutina ansi ólíkt. Og seint verður Sigríður Andersen dómsmálaráðherra sökuð um mannúð og mildi.
Ásmundur segist finna fyrir miklum stuðningi
Gagnrýnir þá sem ekki vilja ræða kostnað við hælisleitendur

Við Íslendingar höfum þegar lagt mikið af mörkum. Framlög okkar til hjálparstarfa hafa stórvaxið. Hluti aðstoðar okkar felst í því að senda fólk á vettvang og sinna borgaralegum verkefnum. Þá höfum við í auknum mæli tekið á móti flóttafólki beint úr flóttamannabúðum. Hér heima fyrir höfum við verið að auka stuðning við íslenskukennslu, húsnæðisleit og aðlögun að samfélaginu.
Alls kyns áskoranir hafa fylgt þessum breyttu aðstæðum fyrir stjórnkerfi okkar en heilt yfir hefur tekist ágætlega til. Við höfum brugðist hratt við. Málsmeðferðartími hefur styst verulega. Við höfum styrkt stjórnsýsluna fjárhagslega og faglega og sett okkur það markmið að aðstoð við þá sem fá hér hæli verði sambærileg við þá sem flóttamenn hafa fengið.
Mannúð og mildi eru leiðarljós okkar í þessum málaflokki og fjármunum til hans er vel varið.
Ásmundur segist finna fyrir miklum stuðningi
Gagnrýnir þá sem ekki vilja ræða kostnað við hælisleitendur
Gagnrýnir þá sem ekki vilja ræða kostnað við hælisleitendur
föstudagur, 13. október 2017
Guðmundur Andri gerist pólitíkus ......
Nú er Guðmundur Andri orðinn pólitíkus, ekki pistlahöfundur sem maður les sér til ánægju á hverjum mánudegi. Pistlahöfundur sem er siðvitur, hlýr og beinskeyttur. En .... það er eins og önnur lögmál gildi þegar í stjórnmálin er komið. Við erum sammála um það að það er mundur
á hægri og vinstri eins og kemur fram í pistli Guðmundar Andra í Fréttablaðinu í gær, við erum líka sammála um að það sé nauðsyn að hvíla eigendur Íslands, Sjálfstæðisflokkinn, helst í nokkur kjörtímabil til að koma í gegn þjóðþrifamálum sem hafa hrannast upp á nokkurra ára stjórnarsetu xD og xB (sáluga).
Undirritaður gerir nú samt meiri kröfur en þær sem birtast í þessu pistli þegar Guðmundur Andri ræðir um VG (sjá feitletrað að neðan). Ég var á landsfundi VG um seinustu helgi var þar vitni að dæmalausri samstöðu í öllum málum. Þeir voru ekki til þessir menn (konur eða karlar) sem sjá sinn samherja í xD, það væri gaman að heyra frá Guðmundi Andra hver væru þessi sterku öfl. Þau tóku ekki til máls á Landsfundinum. Þau voru ekki með tillögur eða ræddu þetta í starfshópum. Var það ekki Samfylkingin sem seinast tók þátt í stjórnarsamstarfi með Sjálfstæðiflokknum með hörmulegum afleiðingum en ekki VG.
Er ekki svona rakalaus málflutningur Guðmundar Andra dæmi um það sem gerir samstarf erfitt á vinstri kanti? Guðmundur Andri fellur hér á einu af fyrstu prófum sínum sem pólitíkus. Það er leitt. Það er sárt. Sérstaklega þegar mér þykir vænt um skáldverk Andra og heiðarleg skrif hans sem pistlahöfundar um stöðu Íslands og Íslendinga. Sem þarf svo mikið að breyta og bæta. Við þurfum opið og gegnsætt samstarf til að geta starfað saman í ríkisstjórn. Það þróast ekki með því að læða að vafsömum fullyrðingum og getgátum. Vonandi verður þetta ekki hinn nýi bragur Rithöfundarins.
Það er munur á vinstri og hægri. Sjálfstæðisflokkurinn er stór og öflugur flokkur hægri manna, vel skipulagður og vanur því að ráða, með sitt fólk á völdum stöðum í kerfinu. Það getur vel verið að sumum okkar finnist það ágætt að hann stjórni þessu bara – það hafi reynst vel og honum hafi tekist vel upp í undanförnum tilraunum sínum til stjórnarmyndunar. Þá kjósum við hann. En ef við erum ekkert ánægð með völd Sjálfstæðisflokksins og viljum vinstri stjórn sem starfar í almannaþágu þá vandast málið. Dæmin sanna að atkvæði greidd miðflokkabandalaginu leiða til stjórnar með Sjálfstæðisflokknum. Og dæmin sanna líka að þeim mun veikari sem Samfylkingin er þeim mun ólíklegri er vinstri stjórn. Innan VG eru sterk öfl sem sjá sinn samherja í Sjálfstæðisflokknum en slíku er ekki að heilsa innan Samfylkingarinnar.

miðvikudagur, 11. október 2017
Kosningar: Alþingi fyrir hverja?
Það er ennþá sæmilegur tími fram að kosningum svo ýmislegt getur gert. Skoðanakannanir eru ekki samhljóða, þótt blómatími Sjálfstæðisflokksins sé liðiðnn undir lok. Áróður verður sífellt meira fáránlegur. Þeir sem töldu enga peninga vera til fyrir nokkrum mánuðum sjá alls staðar í kringum sig matarkistu, nema hjá þeim sem hafa safnað auði og fé seinustu árin, útgerðir og fyrirtæki. Fullt af peningum í bönkum. Og nú er byrjuð gamla tuggan um skattaáþján VG þótt formaðurinn hafi sagt aftur og aftur á Landsfundinum um helgina að fé eigi að koma frá þeim sem notið hafa góðærisins ekki almenningi og miðstétt. Spillingar gemsarnir Sigmundur og Bjarni sjá alls staðar í kringum sig samsæri og illmennsku. Þráðurinn farinn að styttast hjá sumum.
Fyrir okkur sem erum Vinstri menn, þá er mikilvægt að fara ekki á taugum, sýna fram á hræsni Sjálfstæðisflokksins og hinna ótal svokölluðu Miðflokka sem virðast vera til að selja sig fyrir ráðherrastóla. Það er sorglegt hversu margir eru tilbúnir að hlaupa eftir fagurgala og útúrsnúningum Sigmundar Davíðs, mannsins sem ætlaði að svindla og svindlaði á þjóðinni og heldur að það sé allt í lagi að bakka í faðm Skattayfirvalda, borga einhverjar krónur og þá sé allt gleymt og grafið.
Gleymum ekki að Alþingi er þjónn fólksins í landinu og á að starfa í þágu þess.
_________________________________________
Sigmundur telur að um samsæri sé að ræða

Hann bætir við að kosningarnar feli í sér tækifæri til þess að setja af stað stórsókn í byggðamálum sem Miðflokkurinn hafi boðað undir heitinu „Ísland allt“. Með þeirri stefnu mætti tengja landið þannig að það yrði sem ein heild. Þá yrði einnig hægt að standa við þau fyrirheit sem eldri borgurum á Íslandi hafi verið gefin.
„En við getum líka ráðist í stórsókn í innviðum landsins, uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu, samgöngum og svo framvegis, því að aðstæður hafa aldrei verið eins góðar og nú til þess að hefja sókn til að bæta lífskjör á Íslandi og gera það betra en nokkru sinni áður að búa á þessu góða landi.“
Vill taka fé úr bankakerfi og setja í innviði
Taki Sjálfstæðisflokkurinn þátt í stjórnarmyndunarviðræðum nú að loknum kosningum, segir Bjarni að hann myndi leggja áherslu á að kaupmáttaraukning verði varin, efnahagslegum stöðugleika verði viðhaldið og verðbólgu áfram haldið lítilli. Bjarni segist ekki munu samþykkja auknar álögur á fólk í landinu. Komist Sjálfstæðisflokkurinn til valda að nýju, sjái hann fyrir sér að innviðir verði styrktir með fé úr bankakerfinu og að tekjuskattur verði lækkaður niður í 35 prósent. Það gæti verið gott innlegg í kjaraviðræður framundan.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)