Það er gott að taka sér frí fra Fésbókinni og Bloggi. Að hvíla sig á síbyljunni og vinum og kunningjum sem vilja mynda skoðanir manns. Meira að segja veðrið fær maður ekki að hafa í friði, ég fór austur á Suðurfirði í viku, svo var ég í uppsveitum Árnessýslu í aðra viku. Ef fjölmiðlarnir hefðu fengið að stjórna mér væri þetta afar erfitt sumarfrí hjá mér. En þrátt fyrir sólarleysi voru margir dagar góðir það skiptir máli hvert fólki er með manni. Ég vil líka óska öllum vinum mínum til hamingju með afmælisdaga í fríinu. Ég sé líka að ráðandi öfl hafa ekki tekið sig á seinustu vikurnar. Við sama heygarðshornið. Meira um það seinna!!!!
Ég var uppi á Héraði í þurrki, einning í Þjórsárdal, Geysi, á StóruBorgi í Grímsnesi fórum við í sund í sól þegar rignt hafði töluvert áður svo byrjaði að rigna aftur um leið og við vorum komin upp úr!!!!
Það er merkilegt að koma á höfuðferðastaðina og sjá þennan ferðamannafjölda frá útlöndum og áhuga þeirra og hrifningu yfir landinu okkar. Það er því mikilvægt að eyða þessari auðlind ekki með fíflaskap og grægði.
sunnudagur, 13. júlí 2014
miðvikudagur, 25. júní 2014
HM: Ruddaskapur,snilld og 3 bit
Mikið er knattspyrna orðin ruddaleg íþrótt. Það sér maður vel í Brasilíu um þessar mundir. Stöðugt eru leyfðar meiri og meiri hrindingar. Flestir eru með handleggina í andlitum andstæðinganna. Sem var stranglega bannað fyrir nokkrum áratugum. Þá var stranglega bannað að hrinda frekjulega, maður varð að gera það með höndina niðri með síðunni þegar maður ýtti á andstæðinginn. Nú er öldin önnur. Löppinni skellt fyrir þann fljótari í hverjum einasta leik, hrint á bakið á andstæðingunum. Hausarnir skella saman og mynda dásamlega tónlist meðan blóðið skvettist í allar áttir. Og hámarkinu í ógeðinu er þessi Uruguay maður sem bítur andstæðingana og setur á svið Óskarsleik fyrir framan heiminn.
Svo er hitt hversu margt er undurfagurt, i leik, skipulagi og einstaklingsframtaki það hlýjar manni um hjartarætur. Það nægir ekki að æfa til að verða snillingur. Þetta er líka eitthvað meðfætt, fótboltagenið er langtum göfugra en framsóknargenið!!!!!! Svo koma alltaf nýir furðufuglar fram á sjónarsviðið sem dans inn í Evrópuknattspyrnuna í evru og dollararegni.
Já, svo megum við ekki gleyma þessu, verkfall leikmanna á HM!!!!
Leikmenn Gana hættu við að æfa í gærkvöldi þar sem bónusgreiðslur frá knattspyrnusambandinu höfðu ekki borist.
Þetta staðfesti James Appiah, landsliðsþjálfari Gana, á blaðamannafundi í dag, en framundan er leikur gegn Portúgal á morgun í G-riðli Heimsmeistaramótsins.
Enn fremur staðfesti Appiah að ríkisstjórn Gana hefði gripið inn í málið og eru þrjár milljónir dollara um borð í flugvél sem nú er á leið til Brasilíu til að leysa málið.
Landsliðsmennirnir höfðu krafist þess að fá greiddann fyrirfram samdan bónus fyrir leikinn gegn Portúgal og nú er ljóst að því verður.

Hér er þrenna meistara Suarez !!!!! (utube)
mánudagur, 23. júní 2014
Hollendingar eru skemmtilegir og aðrar fótboltahugleiðingar......
Já, mér finnst Hollendingar ansi skemmtilegir. Með neista og gleði í leik sínum. Sem gefur knattspyrnunni þetta extra. Hollendingarnir hafa það í dag, Sílemenn hafa verið góðir en þá vantar einn Robben á 38 kílómetra hraða. Það var gott að Hollendingar og Brasilíumenn skyldu ekki lenda saman í 16 liða úrslitunum.
Heimsmeistaramótið núna sýnir meiri breidd en áður hefur verið, nokkur fín lið í Suður og Mið Ameríku. 2-3 í Afríku það er helst Asía sem er útundan. Evrópa hefur Holland, Frakkland, Ítalir gætu bæst við. Er ég að gleyma einhverju?
Já, svona knattspyrna er mannbætandi það er ekki hægt að segja það sama um forystuna í FIFA, Alþjóðaknattspyrnusambandinu. Skömm þeirra er mikil. Svo er annað sem ég hef tekið eftir. Maður hefur ekkert heyrt um mótmæli eða óeirðir í Brasilíu eftir að mótið byrjaði. Ætli allir hafi snúið sér að boltanum eða eru fjölmiðlarnir í fréttabindindi um slíkt. Kannski veit einhver um þetta þarna úti!!!!!!

Maó formaður sagði Látum þúsund blóm blómstra það á við í knattspyrnunni í dag eða hvað? Maó þótti samt skemmtilegra að synda. Samanborið fræg afrek hans á því sviði.
Dómstólar: Útgerðaralræðið búið að fá nóg.
Nú er ráðist á dómstólana, dómskerfið. Það er ekki nógu hlýðið, dómarar eiga að dansa eftir pípu útgerðaralræðisins. Að dómarar skuli taka mark á æðsta þrepi bankakerfisins íslenska!! Þvílík firra þvílík flónska!! Að taka mark á rökstuðningi Seðalbanka Íslands. Er það ólögmætur úrskurður ef um grun getur verið að ræða, um ólöglegt athæfi? Það eru nú ansi mörg dæmi um slíkt í okkar samfélagi. Ætli það séu allt fljúgandi englar í LÍÚ? Þeir sem finnst sjálfsagt að stunda viðskipti í ESB þótt aðrir fái það ekki. Sem finnst sjálfsagt að stunda rányrkju við Afríkustrendur. Á ekki að fara í mál við Seðlabankann líka. Minnsta kosti að skipta um Seðlabankastjóra, koma Trotskýistanum úr landi, skipta um áhöfn á Seðlabankaskútunni. Já, lesandi góður, Útgerðaralræðið er búið að fá nóg.Kominn tími til að sýna tennurnar. Því hver er það sem á Ísland? Ekki þú, lesandi minn góður.
„Að mati kæranda hefur hinn kærði héraðsdómari með ætlaði refsiverðri háttsemi sinni brugðist mikilvægum skyldum sínum og valdið ómældum skaða fyrir kæranda sem og aðra aðila sem aðgerðir Seðlabankans beindust að. Um er að ræða mjög alvarlegt brot sem höfðu það í för með sér að kæranda var gert að ósekjuað sæta þvingunarráðstöfunum á grundvelli ólögmæts úrskurðar,“ segir m.a. í kærunni. Þá áskilur kærandi sér rétt til að koma fram með bótakröfu á síðari stigum málsins.

sunnudagur, 22. júní 2014
Vinstri hægri: Ekki enn búin að vera.
Vinstri Hægri alltaf kemur upp umræða öðru hverju um hvað þetta séu úrelt fyrirbrigði
En samt virðast þessi hugmyndahugtök eiga sér sterk ítök hjá
fólki. En svo er spurningin hvað er átt við. Alltaf verð ég hissa þegar maður heyrir valinkunna stjórnmálamenn nota orðmyndina kommúnisti árið 2014 yfir andstæðinga á vinstri vængnum. Einn smáflokkur gæti flokkast að einhverju leiti undir slíkt með þjóðnýtingarhugmyndir. Svo líklega er nú betra að nota hnitmiðaðri orð í umræðu um stjórnmál eins og Umhverfismál Alþjóðamál Jöfnuður nýtt orð hefur skotið upp kollinum Verndarhyggja í umræðunni um afstöðu til útlendinga og nýbúa.
Athygli vekur samhljómur VG og Bjartrar framtíðar, ótrúleg íhaldssemi Framsóknar og rangtúlkun kjósenda xD á flokknum sínum. Þessi könnun virðist enn ekki höndla Pírata enda hafa þeir líklega mesta sérstöðu út frá afstöðu í einstökum málum ekki heildarhyggju.
Svo þessi gömlu hugtök eru ekki úr sögunni..... eða hvað???

Nýjustu niðurstöður úr viðamikilli íslenskri kosningarannsókn, sem staðið hefur frá árinu 1983, voru kynntar fyrir flokkráðsfundi Vinstri grænna af Huldu Þórisdóttur, lektor í stjórnmálafræði, í dag.
Eitt af því sem spurt var að við gerð rannsóknarinnar var hvar þáttakandi staðsetti sig á pólítískum ás frá vinstri til hægri. „Það að afgerandi meirihluti þáttakanda getur staðsett sig á ásnum sýnir að hann hefur enn einhverja merkingu,“ sagði Hulda.
Formaður Vinstri Grænna, Katrín Jakobsdóttir, sem tók til máls á fundinum, sagði að sú orðræða sem væri orðin lenska í íslenskri pólítík að hægri og vinstri væru „dauð“ hugtök hagnaðist fyrst og fremst hægri öflunum. „Hver kannast ekki við hinn ópólítíska sjálfstæðismann?“ spurði Katrín.
Fjórir málefnaflokkar
Í könnuninni voru málefni sem höfðu áhrif á afstöðu kjósenda í grófum dráttum flokkuð í fernt: Alþjóðamál, þar sem afstaða til ESB réði miklu, umhverfismál, þar sem afstaða til orkufrekrar stóriðju var meðal þess sem tekið var fyrir, efnahagslegan jöfnuð, þar sem afstaða til hlutverks ríkisins í að auka tekjujöfnuð var tekið fyrir og það sem Hulda kallaði „verndarhyggju“, en þar var meðal annars afstaða til innflytjenda og vaxtar og viðgangs höfuðborgarinnar í mikilvægum sessi.
Meðal þess sem niðurstöðurnar sýndu var að málefni í flokki efnahagslegs jöfnuðar voru mikilvægust kjósendum VG, en umhverfismál réðu mestu um afstöðu kjósenda bæði VG og Bjartrar framtíðar.
Í flokki alþjóðahyggju voru það kjósendur Samfylkingar og Bjartrar framtíðar sem tóku sterkasta afstöðu sem fylgjandi, en áhrifamesti þátturinn fyrir kjósendur Framsóknar var andstaða við málefnin í þessum flokki.
Að vera fylgjandi málefnum svokallaðrar „verndarhyggju“ var einnig áberandi hjá kjósendum Framsóknar en andstaða við þann málefnaflokk var áberandi hjá Samfylkingunni.
Þá sýndu niðurstöðurnar líka að kjósendur Sjálfstæðisflokksins væru þeir kjósendur sem höfðu hvað ólíkasta sýn á eigin staðsetningu á pólítískum ás og staðsetningu flokksins. Þannig standa almennt mun fleiri kjósendur Sjálfstæðisflokksins en annarra flokka í þeirri trú að afstaða flokks þeirra sé fjær pólítískri miðju en þeirra eigin sannfæring. (mbl.is)fimmtudagur, 19. júní 2014
Fótbolti: Samba í rigningu.... allir með......
Ein skemmtilegasta riðlakeppni allra tíma heldur áfram að koma manni á óvart.
Ástralíu tókst næstum því að kafsigla Holland. En Hollendingarnir tóku þetta á reynslu og
útsjónarsemi.
Svo var það spútniklið keppninnar Chile sem tóka heimsmeistarana í nefið, maður vorkenndi þeim oft.
ið. Gæti verið liðið sem nær alla leið. Svo var það Króatía sem lék sér að Kamerún, var þetta ekki liðið sem kom í veg fyrir að við værum að leika í Brasilíu?
Markasúpa þrátt fyrir góðar varnir, góð markvarsla, ótrúlegar skyttur. Við höldum áfram að fylgjast með þegar við fáum svona dásemdir dag eftir dag. Svo rignir úti.
Ég held áfram að dansa Sömbu fyrir framan sjónvarpið. Hvað sem Egill gerir. Ég er langtum flottari Sambadansari. Árshátíðir Kúbuvinafélagsins skiluðuð ýmsu.
'

þriðjudagur, 17. júní 2014
Ríkisstjórn: Þyrnirósasvefn þráhyggju og heimsku
Einangrun og vinir vekja athygli. Ég ræddi fyrir nokkrum dögum um vandamál ríkisstjórnar að íhuga stöðu sína meðal annarra þjóða. Nú hafa Bandaríkjamenn sent okkur skilaboð. ESB gerði
það líka með niðurfellingu styrkja. Það er tekið eftir yfirlýsingum valdsmanna okkar. Enn vitum við ekki hvað forsætisráðherra sagði í frægri ferð til Evrópu.
Það er fylgst með yfirlýsingum okkar og samskiptum. Daðri við einræðisþjóðir, þótt utanríkisráðherra hafi reynt að kveða það niður með yfirlýsingum um Úkraínu og Krím. Forsetinn heldur áfram nánu sambandi við harðstjórana í Kína. Hvalveiðar og sala eru einstök í okkar heimshluta. Framsóknarflokkurinn er annar af tveim stjórnarflokkum í Vestur Evrópu sem daðrar við útlendingahatur og kynþáttahyggju.
Er það furða þótt ýmislegt hafi breyst frá því að Össur talaði við John Kerry fyrir rúmu ári.

„Þegar John Kerry var nýorðinn utanríkisráðherra í fyrra fór hann til Evrópu og hitti utanríkisráðherra margra Evrópuríkja á fundi í Róm. Hann kom sérstaklega til mín og sagði mér að hann vildi halda stóra ráðstefnu um velferð hafsins og orðaði það þannig að hann vildi að Ísland væri með áberandi framlag þar og segði frá sinni reynslu vegna þess að Íslendingum hefði gengið svo vel að varðveita fiskistofna,“ segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, um fundinn með John Kerry í Róm í fyrra. Össur stakk þá upp á tilteknum stjórnmálamanni, líklega Ólafi Ragnari Grímssyni forseta, til að tala fyrir Íslands hönd á ráðstefnunni.
Líkt og komið hefur fram þá var Íslendingum ekki boðið á ráðstefnuna sem John Kerry heldur dagana 16. og 17. júní í Washington. Skoðun Kerrys breyttist því ansi mikið á rúmu ári. „John Kerry var mjög ánægður með tillögu mína og fannst hún frábær. Síðan eru þeir núna, bersýnilega, að herða viðbrögð sín út af hvalveiðunum. Nú eru þeir bara bersýnilega komnir á þá skoðun að þeir ætli að sýna okkur þetta með einhverjum táknrænum hætti. Þetta er rosalega harkalegt viðbragð og sýnir það bara að „they mean business“. Þess vegna hef ég sagt að þetta séu kaflaskil; þetta er löðrungur á alþjóðavettvangi.“ dv.is 17.6. 2014
Það er kominn tími til að vakna af Þyrnirósasvefni þráhyggju og heimsku.
myndir: EÓ
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)